Færsla Hringbrautar

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Færsla Hringbrautar

Kaupa Í körfu

FRAMKVÆMDIR við færslu Hringbrautar í Reykjavík eru nú hafnar af fullum krafti, og sjá má stórvirkar vinnuvélar grafa leið nýju brautarinnar um Vatnsmýrina. Að sögn Jónasar Snæbjörnssonar, svæðisstjóra hjá Vegagerðinni, er grafinn um tveggja til þriggja metra djúpur skurður til þess að styrkja undirlag nýju brautarinnar. Vatn seytlar úr Öskjuhlíð og um Vatnsmýrina til Tjarnarinnar, og er settur sérstakur sandur í grunn brautarinnar sem hleypir vatnsstreyminu áfram.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar