Start Art - Dagný Guðmundsdóttir

Friðrik Tryggvason

Start Art - Dagný Guðmundsdóttir

Kaupa Í körfu

VEGGIR sýningarsalarins á efri hæð Start Art listamannahússins eru nú nánast þaktir ljósmyndum af holdi. Þar sýnir Dagný Guðmundsdóttir undir yfirskriftinni "Maður með mönnum II" nærmyndir af líkömum fáklæddra karlmanna í ýmsum fangbrögðum. Þar sést t.d. olnbogi þrýstast upp að loðinni bringu og vöðvaþaninn, æðaþrútinn handleggur krækja í annan útlim. Stundum er ekki gott að segja hvaða líkamshlutar eru á ferðinni. Í myndunum eru erótískir undirtónar sem gætu höfðað til kvenna - þær búa m.a. yfir myndrænum eiginleikum sem skírskota til karlmannsímyndar klassískrar fornaldar - en þær lýsa jafnframt karllægum heimi þar sem konan er utanveltu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar