Húsavík

Hafþór Hreiðarsson

Húsavík

Kaupa Í körfu

Húsavík | Nýr vegur með bundnu slitlagi sem tengir saman hafnarsvæðin á Húsavík er kominn í gagnið. Hann liggur niður Naustagilið og þaðan frá hafnarstéttinni að athafnasvæði Húsavíkurhafnar við Norðurgarð. Um þennan veg fara miklir þungaflutningar, m.a. kísil- og gámaflutningar auk annarrar umferðar og er þarna um að ræða miklar vegbætur sem löngu voru orðnar tímabærar. Vegurinn er tilgreindur sem þjóðvegur í þéttbýli og var því verkefni á vegum Vegagerðarinnar. Húsavíkurkaupstaður kostaði hins vegar gerð gangstéttar sem liggur með veginum sjávarmegin.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar