Hvassviðri á Akureyri

Kristján Kristjánsson

Hvassviðri á Akureyri

Kaupa Í körfu

Um 20 metra aspir víða við umferðargötur NAUÐSYNLEGT er að gera áhættumat varðandi stór og mikil tré sem víða standa við umferðargötur og mannvirki á Akureyri. Þetta er skoðun Hallgríms Indriðasonar framkvæmdastjóra Skógræktarfélags Eyfirðinga. Mildi þykir að ekki hlaust tjón af um helgina þegar 6-8 tré féllu í miklu hvassviðri sem gekk yfir. Einkum á þetta við um myndarlegar aspir sem víða eru í bænum, en ekki er óalgengt að þær elstu sem plantað var í kringum 1950 séu fast að eða yfir 20 metra háar. MYNDATEXTI: Greinar brotnuðu af stórum öspum víða um Akureyri um helgina án þess þó að valda tjóni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar