Nýársfagnaður á borginni

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Nýársfagnaður á borginni

Kaupa Í körfu

Nýju ári fagnað á Borginni Nú árið er liðið ... ÞAÐ voru sérlega prúðbúnir gestir sem mættu á nýársfagnað Hótel Borgar í ár og fögnuðu nýju árþúsundi. Hljómsveitirnar Stjórnin og Fönk Master 2000 léku fyrir dansi og áttu fimir fætur gesta margir hverjir góða spretti fram á morgun. Hópur ungra sveina tók sig til og mætti í þjóðlegum skoskum búningum. Trylltu þeir yngismeyjarnar eru þeir buðu þeim snúning á dansgólfinu. MYNDATEXTI: Fjölnir, Marín Manda og Óliver voru hátíðleg og sérlega prúðbúin í tilefni dagsins.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar