Arnaldur Björnsson

Sverrir Vilhelmsson

Arnaldur Björnsson

Kaupa Í körfu

VINDASAMT hefur verið á landinu undanfarna daga, kaldur vindur og napur hefur séð landsmönnum fyrir nægu umræðuefni í svartasta skammdeginu. Svo eru jólin líka að baki og jólaskrautið þar með. Hreinsunardeild höfuðborgarinnar sér um að hirða jólatrén framan við hús borgaranna, en sum verða Kára að bráð og fjúka um stræti og torg þar til einhver sér á þeim aumur og stöðvar flakkið í fokinu. Ungi maðurinn á myndinni gekk fram á þetta tré á förnum vegi og hefur eflaust viljað bjarga nálægum bifreiðum frá barningi af völdum þess.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar