Inga Guðmundsdóttir

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Inga Guðmundsdóttir

Kaupa Í körfu

Inga Guðmundsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1966, en ólst upp á Ísafirði. Hún lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla árið 1986, og varð viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands árið 1992. Að loknu námi starfaði hún hjá Blindrafélaginu sem aðalbókari og síðar skrifstofustjóri til 1995, hjá Oz í eitt ár við sérverkefni og sem fjármálastjóri Áburðarverksmiðjunnar árið 1997. Hún hóf störf sem sérfræðingur í innra eftirliti Olís árið 1998. Maki Ingu er Gunnar Þór Friðleifsson tölvunarfræðingur hjá Opnum kerfum og eiga þau eina dóttur, Katrínu Elvu

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar