Lögreglustöðin í Reykjavík

Jim Smart

Lögreglustöðin í Reykjavík

Kaupa Í körfu

AÐGENGI fatlaðra er nú að taka stakkaskiptum við lögreglustöðina við Hverfisgötu. Búið er að steypa brautir að dyrum hússins að báðum inngöngum. Til hefur staðið í nokkurn tíma að lagfæra tröppur hússins og var ákveðið að gera aðgengi fyrir fatlaða um leið. Í framhaldinu verða tröppur hússins brotnar upp og steyptar að nýju. Þá verður settur hiti undir tröppur og brautir. Við aðrar dyrnar er mikill bogi á brautinni, sem stafar af því að ákveðin viðmið eru til samkvæmt reglum um leyfilegan halla á slíkum brautum. Til þess að hallinn yrði ekki of mikill varð að setja brautina í stóran boga.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar