t- cross

t- cross

Kaupa Í körfu

Maður veltir stundum fyrir sér hvort fólksbílar séu að deyja drottni sínum, nú þegar bílaframleiðendur keppast við að setja á markað jepplinga sem dansa á grensunni við það að vera smábílar með mikilmennskubrjálæði. T Cross er innlegg Volkswagen í þennan flokk, byggður á sama grunni og VW Polo, en er hærri, lengri og rúmbetri. T Crossinn er þó ekki, eins og stundum vill verða, einhverskonar unglingsútgáfa af Polo, í miðjum vaxtarkipp og einkennilegum hlutföllum, heldur hefur Volkswagen náð að skapa honum sjálfstætt útlit og tekist vel til.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar