Hafsögumenn og lóðsbáturinn Jötunn

Hafsögumenn og lóðsbáturinn Jötunn

Kaupa Í körfu

Það var logn og blíða í Reykjavík á sjöunda tímanum í gærmorgun þegar hafnsögubáturinn Jötunn sigldi til móts við tvö skemmtiferðaskip sem komu samtímis á Ytri-höfnina. Hafnsögumenn stigu um borð og stýrðu skipunum að Skarfabakka. Sumarið er mikill annatími hjá hafnsögumönnum og öðrum starfsmönnum Faxaflóahafna. Til marks um það eru skráðar 38 komur skemmtiferðaskipa til Reykjavíkur, bara í júlí. Suma daga eru fleiri en eitt skip í höfninni. Til dæmis verða fjögur skemmtiferðaskip samtímis í Sundahöfn á föstudaginn. Þá eru ótalin önnur erlend skip, sem þarf að lóðsa í höfnina.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar