Breytingar á Hofsvallagötu

Rósa Braga

Breytingar á Hofsvallagötu

Kaupa Í körfu

Upphaflegur kostnaður vegna framkvæmda Reykjavíkurborgar við Hofsvallagötu nam alls 17,7 milljónum króna. Þar af nam heildarkostnaður vegna uppsetningar á flöggum og fuglahúsum 3,5 milljónum króna og kostnaður vegna gróðurkassa kostar borgarbúa rúma 2,7 milljónir króna. Bjarni Brynjólfsson, upplýsingastjóri Reykjavíkurborgar, segir tölurnar ekki sýna rétta mynd af kostnaðarliðum. „Hvert fuglahús kostar t.d. 15.000 krónur, málunin á þau kostar 1.200 krónur og númerin á þau 1.000 krónur þannig að þau kosta hvert og eitt alls 17.200 krónur. Þetta er heildarkostnaður upp á rúmar 155 þúsund krónur fyrir fuglahúsin,“ segir Bjarni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar