Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins

Júlíus Sigurjónsson, julius@mbl.is

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins

Kaupa Í körfu

Fulltrúar tryggingafélagsins Sjóvár-Almennra færðu Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins þrjá veglega konfektkassa í gær sem þakklætisvott fyrir vel unnin störf við brunann á Laugavegi um síðustu helgi. "Það er virkilega gaman að fá svona gjöf og alltaf gott að finna að fólk metur starf okkar," sagði Jón Viðar Matthíasson, aðstoðarslökkviliðsstjóri, sem tók við gjöfinni ásamt Hrólfi Jónssyni slökkviliðsstjóra fyrir hönd Slökkviliðsins. Myndatexti: Slökkviliðsmenn fengu konfekt fyrir vaska framgöngu við brunann á Laugavegi. (F.v.) Jón Viðar Matthíasson, aðstoðarslökkviliðsstjóri, Sigurður Ingi Geirsson, deildarstjóri eignatjóna Sjóvár - Almennra, Hrólfur Jónsson slökkviliðsstjóri með gjöfina og Oddgeir Sæmundsson, tjónaskoðunarmaður hjá Sjóvá - Almennum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar