Heimasíða 

Leiðangursmenn

Dagbók

Greinar 

Kort af leiðinni

Útbúnaður

Fjallið

Gestabók

Styrktaraðilar

  Gáfu forsetanum Everest-fánann  

Hallgrímur afhenti Ólafi Ragnari fánann sem þeir fóru með á tind Everest.
Hörður, bróðir hans, fylgist stoltur með.

Everest-fararnir, Hallgrímur Magnússon, Einar K. Magnússon og Björn Ólafsson, færðu Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, íslenska fánann sem þeir fóru með á tind Everest. Fáninn verður geymdur á Bessastöðum í framtíðinni. Forseti Íslands sagði að afrek Everest-faranna væri komandi kynslóðum fyrirmynd um hvað við getum þegar áræðni, dugur, þjálfun og kjarkur færi saman.

Hallgrímur, Einar og Björn og fylgdarmenn þeirra, Hörður Magnússon og Jón Þór Víglundsson, fengu höfðinglegar móttökur þegar þeir lentu í Keflavík eftir sex vikna ferðalag. Á flugvellinum biðu ættingjar, vinir, félagar úr hjálparsveitunum og forsetahjónin. Eftir að nánustu ættingjar höfðu heilsað fjallgöngumönnunum bauð forseti Íslands þá velkomna.

Mikilvægt að eiga afreksmenn
Ólafur Ragnar sagði við þremenningana að það hefði verið stór stund í lífi Íslendinga og sögu þjóðarinnar þegar þeir stóðu á tindi Everest. "Þjóðin fylgdist með göngu ykkar skref fyrir skref og í raun og veru má segja að ykkar ganga hafi verið hennar ganga. Þegar sigurinn var í höfn og okkur bárust hingað heim orð ykkar frá tindinum þá sameinaðist þjóðin, einhuga og stolt og fagnaði fyrir ykkar glæsilega árangri.

Það er mikilvægt fyrir okkar litlu þjóð að eiga afreksmenn. Það sannar fyrir okkur sjálfum rétt okkar í samfélagi þjóðanna, en er líka fyrirmynd fyrir nýjar kynslóðir, unga fólkið í landinu, hvað við getum ef einbeitni, áræðni, dugur, kjarkur og þjálfun fara saman. Það hafið þið vissulega sýnt í þessum leiðangri og ég er viss um að á sama hátt og Hillary og Tenzing voru tákn mikilla afreka fyrir mína kynslóð, sem munum þeirra stóru stund þegar þeir stóðu fyrstir á tindi Everest, þá á ykkar afrek eftir að vera tákn og hvatning fyrir unga Íslendinga um langan aldur. Ég færi ykkur hamingjuóskir þjóðarinnar allrar og þakkir fyrir að hafa gefið okkur þennan sigur sem Everest-gangan er.

Eignuðumst hlutdeild í tindinum
Fjöllin, dulúð þeirra og tign hafa ætíð gegnt miklu hlutverki í sálu okkar Íslendinga. Ættjarðarást okkar er samofin fjöllunum. Everest-tindurinn hefur sama sess í hugum mannkyns eins og íslensk fjallanáttúra hefur fyrir okkur Íslendinga. Með ykkar sigurgöngu höfum við Íslendingar eignast hlutdeild í hæsta tindi heimsins. Fyrir það vil ég þakka ykkur fyrir hönd allra Íslendinga og færa leiðangrinum öllum og fjölskyldum ykkar innilegar hamingjuóskir," sagði Ólafur Ragnar.

Hallgrímur Magnússon þakkaði fyrir hönd fjallgöngumannanna. Hann dró síðan upp íslenska fánann, sem þeir höfðu með sér á tindinn, og gaf forsetanum. Ólafur Ragnar þakkaði kærlega fyrir fánann og sagði að fáninn yrði varðveittur á Bessastöðum innan um helstu dýrgripi þjóðarinnar.

Forsetahjónin hafa boðið fjallgöngumönnunum í kvöldverð til Bessastaða.

Mannfjöldi á Ingólfstorgi 
Síðdegis safnaðist mikill mannfjöldi á Ingólfstorg í Reykjavík til að fagna Everest-förunum. Meðan beðið var eftir fjallgöngugörpunum sigu félagar þeirra úr Hjálparsveitum skáta niður af Morgunblaðshúsinu í Aðalstræti en tindurinn sem Björn, Hallgrímur og Einar klifu er um 300 sinnum hærri en sú bygging.

Sniglabandið hitaði upp fyrir komu Everest-faranna á Ingólfstorg en upp úr klukkan 18 var þeim ekið í Hjálparsveitarbíl upp að sviði á torginu. Þar hyllti mannfjöldinn garpana. Þeir færðu Ólafi Ólafssyni, forstjóra Samskipa, sem var helsti styrktaraðili leiðangursins, flagg félagsins, sem þeir höfðu með sér á tind Everest. Ólafur færði þeim félögum blóm á klöpp úr Esju.

Björn Bjarnason menntamálaráðherra ávarpaði fjallgöngumennina og færði þeim gjafir. Hann kvaðst hafa fylgst með ferð þeirra á alnetinu á Everest-síðu Morgunblaðsins af miklum spenningi eins og meirihluti landsmanna. Hann sagði þá félaga hafa unnið mikið afreksverk sem yrði lengi í minnum haft.

 
 
© 1997 Morgunblaðið

Allur réttur áskilinn