5 ára dóttirin með 5,8 milljóna Rolex-úr

Stormi Webster, fimm ára dóttir Kylie Jenner, á 5,8 milljóna …
Stormi Webster, fimm ára dóttir Kylie Jenner, á 5,8 milljóna króna Rolex-úr. Samsett mynd

Hin fimm ára gamla Stormi Webster, dóttir raunveruleikastjörnunnar Kylie Jenner, virðist vera með ansi dýran smekk. Jenner deildi á dögunum myndskeiði þar sem hún sýndi 5,8 milljóna króna Rolex-úr dóttur sinnar. 

Jenner deildi myndskeiði á dögunum á TikTok þar sem hún sýndi fylgjendum sínum allt sem hún er með í glæsilegri Bottega Veneta tösku sinni sem kostar 4.500 bandaríkjadali, eða sem nemur rúmlega 636 þúsund krónum á gengi dagsins í dag. 

Úr töskunni dregur Jenner upp ýmsar vörur, þar á meðal glæsilegt úr dóttur sinnar. „Ég er með litla úrið hennar Stormi hérna. Þetta var í raun úrið mitt, en hún var með það. Sjáið hvað úlnliðurinn hennar er lítill! Hún var með það í afmælisveislu og vildi ekki vera með það lengur,“ sagði raunveruleikastjarnan. 

Úrið virðist vera gyllt Day-Date úr að andvirði 41.500 bandaríkjadala, eða sem nemur rúmlega 5,8 milljónum króna á gengi dagsins í dag.

Úrið er hið glæsilegasta.
Úrið er hið glæsilegasta. Ljósmynd/Chrono24.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda