Sjötug kona fæddi tvíbura

Namukwaya skömmu eftir fæðinguna.
Namukwaya skömmu eftir fæðinguna. Skjáskot/Facebook

70 ára gömul kona fæddi tvíbura í höfuðborg Úganda á miðvikudag, samkvæmt tilkynningu frá Women's Hospital International and Fertility Center þar í landi. Konan, Safina Namukwaya, varð barnshafandi í kjölfar glasafrjóvgunar og eignaðist tvö heilbrigð börn, dreng og stúlku, með hjálp tækninnar. Börnin voru tekin með keisaraskurði. 

Namukwaya, sem er með elstu konum í heimi til að eignast barn, sagði fjölmiðlum þar í landi að þetta væri „sannkallað kraftaverk.“

Sjúkrahúsið birti færslu á Facebook-síðu sinni skömmu eftir fæðinguna og óskaði nýbökuðu móðurinni innilega til hamingju ásamt því að tilkynna um þetta ótrúlega afrek. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda