Katla er fertug og á von á þriðja barninu

Lífið leikur við Kötlu Hreiðarsdóttur sem er ólétt og fertug …
Lífið leikur við Kötlu Hreiðarsdóttur sem er ólétt og fertug í dag.

Katla Hreiðars­dótt­ir, fata­hönnuður og eig­andi versl­un­ar­inn­ar Syst­ur og mak­ar, fagnar fertugsafmæli sínu í dag með því að tilkynna að hún eigi von á sínu þriðja barni með eiginmanni sínum Hauki Unnari Þorkelssyni. Fyrir á Haukur tvö börn svo börnin á heimilinu verða alls fimm í haust. 

Rætt var við Kötlu í tilefni dagsins í Morgunblaðinu í dag. Þar gaf hún til kynna að hún ætti von á barni. 

„Barnalánið veittist mér seint en það kom greinilega með trukki þegar það átti loks að koma! Eiginmanni mínum kynntist ég árið 2019 og fylgdu honum tveir gormar og höfum við nú þegar bætt tveimur við í viðbót og erum ekki alveg hætt …“,“ segir Katla í viðtali við Morgunblaðið. 

Katla og Haukur greindu frá barnaláninu á Instagram í dag. Þar sagði Katla að von væri á barninu í september. Þau birtu ekki bara mynd af sónarmynd heldur einnig kaupsamning en hjónin voru að kaupa nýja fasteign. Það eru því spennandi tímar fram undan sem fylgja hækkandi aldri. 

Fjölskylduvefur mbl.is óskar fjölskyldunni til hamingju með nýja húsið og óléttuna!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda