„Mark­miðið að tak­marka eða bara sleppa al­veg skjánotk­un í frí­inu“

Steinunn á tvo unga syni, Jón Braga og Martein Nóa, …
Steinunn á tvo unga syni, Jón Braga og Martein Nóa, með eiginmanni sínum, tónlistarmanninum Gnúsa Yones. Samsett mynd

Steinunn Jónsdóttir hefur látið mikið að sér kveða á ólíkum sviðum tónlistarinnar síðastliðin ár. Hún sló fyrst í gegn með reggíhljómsveitinni Amabadama árið 2014, en lag sveitarinnar, Hossa Hossa, náði öllum út á dansgólfið, og síðar með rappsveitinni Reykjavíkurdætrum.

Um þessar mundir er hún á fullu að undirbúa útgáfu nýrrar plötu sem er væntanleg í byrjun sumars, en Steinunn gaf á dögunum út aðra smáskífuna af plötunni, lagið Stiklað á stóru.

Samhliða tónlistarferlinum rekur hún ásamt eiginmanni sínum, tónlistarmanninum Magnúsi Jónssyni, eða Gnúsa Yones eins og hann er betur þekktur, hæfilega mannmargt og erilsamt heimili, en parið á tvo unga syni, þá Jón Braga og Martein.

Steinunn gaf sér tíma til að svara nokkrum spurningum um páskafríið, fjölskyldulífið og tónlistina.

Steinunn ásamt sonum sínum, Jóni Braga og Marteini Nóa.
Steinunn ásamt sonum sínum, Jóni Braga og Marteini Nóa. Ljósmynd/Aðsend

Hvað ætlið þið að gera með börnunum í páskafríinu?

„Ég hlakka mikið til að vera í fríi með strákunum mínum eftir annasama ársbyrjun. Við búum í Fossvoginum þannig að nestisferðir niður í annan hvorn dalinn, Elliðaár eða Fossvogs, eru ofarlega á plani. Síðan höfum við fengið boð um að heimsækja vini sem ætla að dvelja í sumarbústað um páskana og við gerum örugglega eitthvað gott ævintýri úr því. Aldrei að vita nema við skellum okkur sjálf í sveitina okkar, þó ekki nema eina nótt.

Þar sem ég vinn í tölvu og þarf oft að sinna alls konar í símanum tengt vinnunni minni eða tónlistinni, og synir mínir hafa báðir aðeins of gaman af því að vera fyrir framan skjáinn, er markmiðið að takmarka eða bara sleppa alveg skjánotkun í fríinu. Ég hef fulla trú á því að það gangi vel, sérstaklega ef við foreldrarnir sýnum gott fordæmi.

Hvernig haldið þið páskana?

„Við byrjum páskadag á góðum ratleik, eins og hefð er fyrir. Fyrir yngri son minn höfum við síðustu ár prentað út myndir af alls konar stöðum og hlutum á heimilinu, því hann var enn of ungur til þess að ráða í teikningar foreldra sinna. Það virkaði vel og þá hefur hann náð að leysa ratleikinn alveg sjálfur, sem er best. Eldri sonurinn fær aftur á móti vísur sem við foreldrarnir eyðum laugardagskvöldinu í að semja. Eftir páskaeggjaát og rólegheit förum við til systur hans pabba í árlegt páskakaffi og svo þaðan örugglega til tengdaforeldra minna í mat. Bara svona gaman saman.”

Fjölskyldan mun örugglega spila eins og einn körfuboltaleik í páskafríinu.
Fjölskyldan mun örugglega spila eins og einn körfuboltaleik í páskafríinu. Ljósmynd/Aðsend

Hvað finnst ykkur skemmtilegast að gera saman?

„Ég spurði eldri son minn og hann sagði: „Fara í sund og út í körfubolta.“ Ég er mjög sammála með sundið, það er best! Og það er alltaf góð stemning á körfuboltavellinum. Nú eru þeir bræður báðir byrjaðir að æfa og pabbi þeirra var líka körfuboltastrákur þannig að ég þarf kannski að taka nokkrar aukaæfingar til að halda í við þá. Ég stend aftur á móti fremst meðal jafningja þegar við förum í danskeppni. Þar er ég á heimavelli. Annars bara langir, ævintýralegir göngutúrar, spila, ferðast og fara í bíó; svo fátt eitt sé nefnt.”

„Mamma var mikill tónlistarunnandi meðan hún lifði“

Steinunn hefur verið viðloðandi tónlistarheiminn, bæði sem flytjandi og lagahöfundur, í dágóðan tíma. Hún segir tónlistaráhugann hafa fylgt sér frá barnæsku og að foreldrar hennar hafi spilað stóran þátt.

„Tónlistaráhuginn kemur örugglega frá mömmu og pabba. Mamma var mikill tónlistarunnandi meðan hún lifði og pabbi er það enn. Þau spiluðu uppáhaldslögin sín hátt í bílnum og heima fyrir og það var alltaf góð stemning. Megas, Velvet Underground, Radiohead og alls konar gömul íslensk tónlist. Ég æfði svo á víólu þegar ég var barn og unglingur og söng í kór, þannig að þar fékk ég að kynnast klassískri tónlist, lærði að lesa nótur og fékk góðan skilning á því hvernig textar flæða við undirspilið.

Þegar ég var unglingur fékk ég æði fyrir Woodstock og tónlistinni frá þeim tíma. Þegar ég byrjaði að mæta á RVK Soundsystem-kvöld um tvítugt kynntist ég svo reggíinu almennilega og ég hef verið með það á heilanum síðan. Það sem grípur mig helst eru góðir textar og ef lögin láta mig vilja dansa, því ég elska að dansa.”

Sýna börnin þín áhuga á tónlist?

„Já, algjörlega. Eldri sonur minn er að æfa á básúnu og er allt í einu farinn að hlusta mikið á rapp, sem er kannski ekki að undra þegar foreldrarnir eru báðir rapparar. Þegar hann var lítill var hann líka mikill dansari, og sagði til að mynda fjögurra ára þau fleygu orð að „grúvið“ byrjaði í rassinum. Ég gæti ekki verið meira sammála honum. Hann er enn þá góður að dansa þó að hann byrji kannski ekki alltaf að dilla sér af öllu hjarta strax og hann heyrir gott „grúv“ eins og hann gerði þá.

Sá yngri elskar tónlist líka og stundum ef hann fær að fara í símann fer hann bara á Spotify og skrollar þar á milli uppáhaldslaganna sinna, sem eru mörg hver úr smiðju IceGuys þessa dagana. En hann er líka þannig að hann man allar laglínur og er mjög lagviss. Einu sinni fórum við að hlusta á skólahljómsveitina spila í messu og þar heyrði hann lag í fyrsta skipti sem hann raulaði svo heima, nótu fyrir nótu, í margar vikur á eftir. Við ákváðum þá að prófa hann aðeins og erum með þær grunsemdir að hann sé mögulega með svokallað „perfect pitch“, en það kemur í ljós,” segir Steinunn og hlær.

Steinunn gaf á dögunum út aðra smáskífu af væntanlegri plötu.
Steinunn gaf á dögunum út aðra smáskífu af væntanlegri plötu. Ljósmynd/Eva Schram

Steinunn segist sækja innblástur í allar áttir, en hún horfir mikið til gullaldarára reggítónlistar.

„Já, ég sæki mikinn innblástur í gullaldarár reggísins, Gregory Isaacs, Burning Spear, Culture, Marcia Griffiths og fleiri. Ég elska líka að fara á tónlistarhátíðir eða bara góða tónleika, sérstaklega í útlöndum og við höfum alveg verið frekar dugleg við það síðustu ár. Ég held að ég verði mest innblásin þegar ég heyri eða sé önnur skáld eða tónlistarfólk gera sitt af ástríðu og innlifun. Hvort sem það er á tónleikum eða í gegnum kvikmyndir eða bækur.

Ég horfði um daginn á þætti á RÚV um Leonard Cohen og ástkonu hans, Marianne, sem bjuggu í listamannanýlendu á grískri eyju þar sem öll sem þar bjuggu höfðu rými til að sökkva sér ofan í sköpunina. Ég varð mjög innblásin af þeim og fór að hlusta almennilega á Cohen í kjölfarið. Það kveikti á einhverju og textarnir ullu upp úr mér. Nú er ég að hlusta á ævisögu Bob Dylan og Debbie Harry til að halda þessum innblæstri gangandi og þrái ekkert heitar en að fara á gríska eyju með alls konar skapandi fólki og gera einhverja snilld, eða bara í íslenska sveit. Það er kannski nærri lagi.

Síðast en ekki síst þá verð ég að nefna vorið. Það er eitthvað við þennan árstíma sem kveikir í sköpunarkraftinum mínum. Hækkandi sól, fuglasöngur og græna veröld.”

„Markmiðinu var sem sagt ekki náð“

Segðu mér aðeins frá nýja laginu og hvernig það kom til að vera?

„Ég er sem sagt að vinna að plötu með honum Gnúsa mínum Yones sem á að koma út í byrjun sumars ef allt smellur. Þetta lag er nýjasta lagið á plötunni og varð til eftir að ég setti mér það markmið að skrifa einn texta á dag í litla skipulagsdagsbók sem mér áskotnaðist. Þetta var fyrsti textinn sem ég skrifaði og ég varð svo spennt að semja lag við hann að ég skrifaði ekki fleiri í þessa bók. Markmiðinu var sem sagt ekki náð. En þetta skemmtilega lag varð til, þannig að ég er ekkert leið yfir því, enda er ég líka búin að skrifa fullt síðan - bara í aðrar bækur.

Lagið er með mjög klassískum „roots reggí“-takti og góðri stemningu og Gnúsi samdi það með mér, tók upp og útsetti. Við fengum svo nokkra velvalda vini til þess að syngja bakraddir, en það voru þau Arnljótur Sigurðsson úr Ojba Rasta, Reykjavíkurdóttirin Ragga Holm, Kalli Youze eða Charlie D úr Subterranean, konan hans, Kolbrún Guðmundsdóttir og Atli Jóns, litli bróðir minn, en hann spilar líka á gítar í laginu af stakri snilld. Bassaleikarinn Andreds Tosh, sem var með okkur í Amabadama, slær svo á bassann og Gnúsi spilar sjálfur á restina af hljóðfærunum, en hann tók líka herlegheitin upp og hljóðblandaði. Það var svo Friðfinnur Oculus sem hljóðjafnaði, öðlingur mikill.”

Lagið Stiklað á stóru er að finna á Spotify.
Lagið Stiklað á stóru er að finna á Spotify. Ljósmynd/Aðsend

Hvenær lítur platan dagsins ljós?

„Vonandi sem fyrst! Hún er eiginlega bara tilbúin, á bara aðeins eftir að fínpússa. Ég er svo orðin mjög spennt að byrja á næstu plötu og er komin með fullt af nýjum textum, þarf bara að komast á gríska eyju til að klára lögin hugsa ég. Annars er gaman að segja frá því að ég er búin að fá til liðs við mig mjög vel valda hljóðfæraleikara og við erum á fullu að æfa þannig að við séum tilbúin til að fylgja fyrstu plötunni eftir í sumar. Þetta verður æði-band þar sem allir meðlimir eiga það sameiginlegt að elska reggítónlist af öllu hjarta. Það er held ég lykillinn að því að ná rétta „fílinu“.

Þannig eru spennandi tímar fram undan! Og nóg af tónlist,“ segir Steinunn í lokin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda