Ragnheiður Harpa Haraldsdóttir, markaðs- og upplifunarstjóri Sky Lagoon, og eiginmaður hennar, Gunnar Gylfason, hafa eignast sitt annað barn.
Fyrir eiga hjónin tveggja og hálfs árs gamla dóttur, Ebbu Salvöru.
Ragnheiður og Gunnar tilkynntu um komu nýjasta fjölskyldumeðlimsins, sem er drengur, í sameiginlegri færslu á Instagram í gær.
„Hann er kominn til okkar!
Tvíbakaðir foreldrar þakklátir og meyrir og stóra systir tekur svo fallega á móti litla bróður af undrun og aðdáun.
Lífið byrjaði á smá rússíbana þar sem við eyddum fyrstu dögunum okkar á vökudeildinni en allt er nú á réttri leið og við komin heim. Sameinuð vísitölufjölla. Knús og notalegheit fram undan með haustdrengnum okkar,“ skrifuðu hjónin við fallega mynd af drengnum sofandi í vöggu.
Smartland óskar fjölskyldunni hjartanlega til hamingju.