Björk lét sig dreyma um Lancer-bíl

Þátttakendur Hollywoodkeppninnar árið 1986. Björk Jakobsdóttir leikkona er númer sex …
Þátttakendur Hollywoodkeppninnar árið 1986. Björk Jakobsdóttir leikkona er númer sex í röðinni frá vinstri. timarit.is

Leikkonan Björk Jakobsdóttir var ein þeirra átta kvenna sem létu sig dreyma um rauða Mitsubishi Lancer-bifreið árið 1986 en sigurvegari Hollywood-keppninnar það ár fékk bílinn í verðlaun.

„Nú styttist óðum í Hollywood-keppnina og stúlkurnar átta, sem keppa munu til úrslita, eru í óðaönn að undirbúa sig fyrir keppnina. Og það er svo sannarlega í mörgu að snúast. Stúlkurnar hafa verið í líkamsþjálfun undanfarna tvo mánuði undir handleiðslu Katrínar Hafsteinsdóttur hjá líkamsræktarstöð- inni World Class. Katrín er með stúlkurnar í alhliða líkamsþjálfun og eróbik. Auk þess fara stúlkurnar öðru hverju í ljós,“ sagði í grein Vikunnar stuttu fyrir úrslitakvöldið.

„Sigurvegarinn fær í verðlaun bifreið af gerðinni Lancer og rétt til þátttöku í keppninni um titilinn Miss Young International.“

Það var Guðlaug Jónsdóttir sem var kosin Stjarna Hollywood þetta árið og hlaut því þessa svakalegu verðlaun.

Bjössi í World Class umvafinn þátttakendum keppninnar.
Bjössi í World Class umvafinn þátttakendum keppninnar. timarit.is
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál