Ef maður landar ekki draumstarfinu er gott að vera með plan B. Stjörnurnar eru með á hreinu hvað þær væru að gera ef þær hefðu ekki slegið í gegn. People tók saman það sem fræga fólkið langaði til að gera þegar það var yngra og hvað það væri að gera ef það væri ekki í sviðsljósinu.
Reese Witherspoon
Leikkonan sem lagði stund á enskar bókmenntir í Stanford segir að hún hefði hætt í Stanford og farið í læknisfræði. Hún sagðist bara vera hreinskilin og hætti að fela metnað sinn þegar hún sagði að hún væri örugglega fyrsta flokks skurðlæknir og barnahjartasérfræðingur.
Zayn Malik
One Direction-stjarnan sem hefur hafið sólóferil sagði eitt sinn að hann væri að kenna enskar bókmenntir en þannig að hann hefði samt tíma fyrir sköpunargáfuna.
Kendall Jenner
Raunveruleikastjarnan og fyrirsætan elskaði dýr þegar hún var yngri og dreymdi um að verða atvinnuknapi og dýralæknir.
Kim Kardashian
Það er erfitt að ímynda sér hvernig nútíminn væri ef Kim Kardashian væri ekki ein þekktasta kona í heimi. Spurð að því hvað hún væri að gera ef hún lifði venjulegu líf svaraði hún því að hún væri að rannsaka sakamál.
Eva Longoria
Ef leikkonan hefði ekki slegið í gegn í Aðþrengdum eiginkonum væri hún ef til vill að stunda viðskipti.
Britney Spears
Söngkonan er kannski poppprinsessa en hún hefði ekki endilega kosið sér prinsessustarf. Hún sagði einu sinni að hún væri til í að vera barnfóstra barna Angelinu Jolie og Brad Pitt.
Selena Gomez
Ef söngkonan hefði ekki slegið í gegn væri hún þjónustustúlka sem færi oft í karókí.
Angelina Jolie
Leikkonan sker sig úr hópnum eins og vanalega og hefði verið til í að vera útfararstjóri.
Miley Cyrus
Söngkonan sem ólst upp í sviðljósinu dreymdi um að starfa við að skipuleggja brúðkaup.
Megan Fox
Leikkonuna langaði að verða fornleifafræðingur þegar hún var yngri. Ekki er ólíklegt að hún hafi horft á Indiana Jones.