Þú getur tekist á við breytingar

Lífið getur verið hverfult. Áskoranir eru til að komast í …
Lífið getur verið hverfult. Áskoranir eru til að komast í gegnum, svo við getum vaxið og dafnað. Hér er mynd af Gunnhildi með vini sínum Naski sem kvaddi þennan heim í fyrra. mbl.is/úr myndasafni Gunnhildar

Gunnhildur Arnardóttir framkvæmdastjóri CEO Huxunar þekkir vel til mannauðsmála og hefur um árabil veitt stjórnendum og fyrirtækjum leiðbeiningar þegar kemur að því að auka ánægju starfsmanna, en ásamt því er hún áberandi í starfsmannaráðningum og nýjustu fræðum þegar kemur að atvinnumálum í landinu.

Aðspurð hvernig maður viti hvort maður er raunverulega í réttu vinnunni segir hún „Þegar þú sofnar á kvöldin og vaknar á morgnana þá hlakkarðu til að mæta í vinnuna, það er góður mælikvarði á starfið sem þú ert í,“ segir Gunnhildur og bætir við að það sé ekki nóg að hlakka til heldur þarftu að vita í hjarta þínu að þú hafir skilað af þér góðu verki yfir daginn í vinnunni. „Það er ekki verra ef starfi þínu fylgja ákveðnir mælikvarðar sem mæla afköst og ánægju til dæmis viðskiptavina þinna, því þannig verða verk þín meira lifandi inni í fyrirtækinu. Það er gefandi fyrir þig sjálfa og gerir þig að betri manneskju á hverjum degi.“

Gunnhildur Arnardóttir hefur tileinkað lífi sínu mannauðsmálum. Hún hefur m.a. …
Gunnhildur Arnardóttir hefur tileinkað lífi sínu mannauðsmálum. Hún hefur m.a. fengið viðurkenningu frá forseta Íslands fyrir störf sín í þessum málaflokki. mbl.is/úr myndasafni Gunnhildar

Flæði í vinnunni

Gunnhildur segir að þú verðir að vera í ákveðnu flæði í vinnunni og það sé alltaf ánægjulegt ef vinnan samræmist áhugasviði fólks. „Starfsfólk sem starfar við það sem það hefur áhuga á, gleymir stað og stund og dagurinn flæðir áfram ánægjulega í þeirra huga.“ Hún lýsir þessu sem átakalitlu og eðlilegu ferli.

Aðspurð um ráð til þeirra sem eru að leita sér að vinnu og séu opnir fyrir allskonar valmöguleikum segir Gunnhildur. „Ef þú ert opinn fyrir mörgu er gott að átta sig á hvað maður vill ekki gera.

Sem dæmi ef þú vilt ekki starfa í kringum mikið af fólki áttu ef til vill meira heima í bakenda fyrirtækis heldur en í framenda þess. Ef þú getur ekki hugsað þér að starfa við tölvu allan daginn, þá er það góð vísbending um hvað þú átt ekki að sækja um tengt vinnu og svo framvegis. Ég tel mikilvægt að við horfumst í augu við það þegar við leitum okkur að vinnu að við erum aldrei gerð fyrir allt, við höfum öll okkar einstöku hæfileika og það ber að varðveita,“ segir hún.

Við eigum okkur margvísleg hlutverk

Hvað með þá sem standa á krossgötum, hafa kannski verið látnir fara úr sinni síðustu vinnu. Hvaða ráð áttu til þeirra? „Að mínu mati er varla til sú manneskja sem tekur það ekki nærri sér að vera látinn fara úr starfinu sínu, það kemur vanalega öllum að óvörum, ekki síst þeim sem eftir sitja í fyrirtækinu. Í þessu samhengi er einnig gott að hafa í huga að breytingar eru miklar á atvinnumarkaði og þú ert ekki sá eini/sú eina sem ert að upplifa breytingar. Það sem er einnig gott að hafa í huga er sú staðreynd að við sinnum mörgum hlutverkum í þessu lífi. Starfið okkar er eitt hlutverk okkar í lífinu, en svo sannarlega ekki okkar eina. Við erum mörg hver foreldrar, börn foreldra okkar, sinnum félagsstörfum og svo eigum við áhugamál. Það sem ég mæli því með þegar fólk er á krossgötum tengt vinnu er að fókusera á hin hlutverkin í lífinu og muna að það er enginn betri til í heiminum til að takast á við breytingar en þú. En rannsóknir hafa sýnt að Íslendingar eru heimsmeistarar að þessu leyti, enda höfum við alist upp við breytilegt veðurfar og marga aðra óvissuþætti sem við höfum þurft að aðlagast.“

Þú átt skilið að finna vinnu við þitt hæfi.
Þú átt skilið að finna vinnu við þitt hæfi. mbl.is/Thinkstockphotos

Gríðarleg tækifæri geta falist í að tapa vinnu og fá nýja

Er það ekki áskorun mitt í áfalli að fara bara að hafa gaman og njóta? „Jú heldur betur, en við eigum að líta á þetta sem tækifæri. Auðvitað förum við í gegnum nokkur stig sem felast í því að lenda í áfalli, sem er afneitunin, þar sem við hugsum: „Ég trúi ekki að þetta sé að koma fyrir mig.“ Síðan kemur reiðin. Þar næst sjálfsásökunin, síðan förum við á stigið þar sem við verðum forvitin og viljum svör Síðan koma vanalega nýju tækifærin. En ef þú áttar þig ekki á þessum þrepum þá getur þú verið að hringsóla í þessum stigum án þess að komast út úr því og þá missir þú af tækifærinu til að komast á réttan stað. Þegar þú sérð hins vegar að þú ert komin/inn í bata þá byrjar þú að upplifa aukinn styrk úr þessari reynslu, ásamt því að finna til samkenndar með öðrum sem hafa upplifað það sama og það eru verðmæti fyrir samfélagið í heild sinni.“

En af hverju hafa mannauðsmálin heillað Gunnhildi? „Ég bara elska að sjá fólk vaxa og dafna og veit ekkert skemmtilegra en að aðstoða fólk við að komast í réttar stöður og sjá það vaxa og dafna. Það er á þeim tímapunkti sem fólk hefur innleitt m.a. HR Monitor mælitækið okkar hjá CEO Huxun og byrjar að mæla ánægju undirmanna sinna og fær þannig stöðugt endurgjöf á hæfni sína sem stjórnandi.“

Finndu áhugamál og þá finnur þú vinnu

En hvernig finnum við atvinnu sem færir okkur tilgang? „Þú þarft að skoða hverju þú hefur raunverulega áhuga á og finna leið til að vinna við það. Ef þú átt mjög sértæk áhugamál, þá þekki ég til margra sem fá virkilega ánægju út úr vinnu sinni, því þannig stuðla þeir að því að gera það sem þeir hafa áhuga á. Svo sem spila golf, ferðast og svo framvegis. En við þurfum einnig að horfa til þessara þátta þegar kemur að börnunum okkar. Að líta til þess barns sem hefur áhuga á að elda og sýna því hvernig maður getur gert slíkt að atvinnu sinni. Við megum alls ekki reyna að láta börn okkar lifa okkar drauma, það er vonlaust.“

Gunnhildur færir sig yfir í umræðuna um hamingjuna og segist sannfærð um að hana sé að finna í litlu hlutunum. „Mér er svo minnistæð falleg saga af einum hamingjusamasta vinnumanni sögunnar, sem vann í verksmiðju við að aðstoða fólk í framleiðslu. Hann var ekki með mikla menntun, en fólk þurfti á honum að halda og leitaði til hans stöðugt. Þannig fékk hann endurgjöf á verkefnin sín og ánægju við að aðstoða. Kvöldin nýtti hann til að búa til litla gosbrunna, en hann og konan hans sátu löngum stundum úti og horfðu á gosbrunnana mynda regnboga. Þetta færði þau nær hvort öðru og gaf hamingju og ég er sannfærð um að þetta er það sem við eigum raunverulega að vera að leita eftir.“

Að vera með vinnu við hæfi eykur lífsgæði hvers og …
Að vera með vinnu við hæfi eykur lífsgæði hvers og eins í lífinu. mbl.is/Thinkstockphotos

Einkalífið verður að vera orkumikið

Hvað með íslenska stjórnendur, ertu með skilaboð til þeirra? „Mér finnst margir íslenskir stjórnendur til fyrirmyndar. Þeir setja fókusinn á starfsmenn sína og bregðast við áskorunum á lipran og manneskjulegan hátt.“

Gunnhildur segir meiri metnað hjá stjórnendum en hún hefur séð oft áður og efnahagsástandið og lítið atvinnuleysi útskýri það að stóru leyti. „Tryggð starfsmanna minnkar þegar atvinnutækifærin aukast. Sem dæmi get ég nefnt Spán þar sem er 40% atvinnuleysi, þú getur rétt ímyndað þér áherslumuninn á vinnumarkaðnum þar eða hér,“ segir hún og bætir við að starfsmenn séu sífellt að gera meiri kröfur, láta ekki bjóða sér hvað sem er. „Ég persónulega tel hins vegar tækifæri til að gera betur. Það er alltof lág framlegð hjá íslensku vinnuafli að mínu mati sem segir mér að það vantar fleiri eldhuga sem stjórnendur. Einnig þurfum við að vera með opin augu fyrir því hvort við séum með réttan starfsmann í öllum stöðum. Ég er á því að allir hafa gífurlega hæfileika, svo það er tækifæri fólgið í því að færa fólk til í störfum og finna áhugaverð viðfangsefni fyrir hvern og einn.“ Gunnhildur bætir við að eins sé mikil ábyrgð fólgin í því að vera yfirmaður þegar kemur að vinnuálagi. „Þú sem stjórnandi þarft að sjá til þess að fólkið þitt lifi ríku einkalífi, að það mæti fullt af orku til vinnu og fari fullt af orku heim. Það gera framúrskarandi stjórnendur vel að mínu mati,“ segir hún að lokum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál