Er þetta í alvörunni samþykkt?

Melissa McCarthy er ótrúlega falleg og hamingjusöm á að líta.
Melissa McCarthy er ótrúlega falleg og hamingjusöm á að líta. AFP.

Melissa McCarthy er uppáhald okkar allra. Hún er með eindæmum sterk. Segir að tilgangur hennar í lífinu sé að koma fólki til að hlæja, en ekki líta út eins og 18 ára vændiskona eða amma einhvers í brúðkaupi. Hún fagnar fjölbreytileikanum og eyðir ekki tíma í óhamingjusama fýlupúka.  

Þegar lægð er yfir landinu, eða dalurinn er djúpur er ekkert betra en að horfa á gamanmyndir á borð við Bridesmaids, Spy eða Tammy. Það sem vekur kátínu manns á slíkum dögum er ekki endilega fullkomna aðalpersóna sögunnar, heldur fáránlega skemmtilega vinkona hennar sem er ýmist með fótinn upp í splitt að reyna við mann í flugvél eða fórnfús aðstoðarkona einkaspæjara sem gerir allt hvað hún kann til að halda honum á lífi. 

McCarthy er einmitt þessi fjöruga vinkona sem fær mann til að langa að prófa öðruvísi viðhorf til lífsins. Í hverju viðtali á eftir öðru kemur hún með gullmola á borð við: „Ég nenni ekki að svara gagnrýni um holdafar mitt. Mér finnst fáránlegt að til sé svo óhamingjusamt fólk að ef ég lít ekki út eins og 18 ára vændiskona eða amma einhvers í brúðkaupi þá sé ég ómöguleg. Ætlum við í alvörunni að samþykkja þetta ofbeldi?“

Þegar kemur að tilgangi lífsins, þá er McCarthy með hann á hreinu. Hún er sköpuð fyrir húmor, og elskar að fá fólk til að hlæja. Hún segist vera eins og hundur á eftir beini með þetta markmið og hafi engan sérstakan áhuga á því að verða fullkomin að mati annarra. Að hennar mati er hún fullkomin útgáfa af sér eins og hún er sköpuð.

Melissa McCarthy og eiginmaður hennar Ben Falcone eiga sitt eigið …
Melissa McCarthy og eiginmaður hennar Ben Falcone eiga sitt eigið framleiðslufyrirtæki. Hver man ekki eftir þeim í Bridesmaids-atriðinu þar sem hún fór á fjörurnar við hann í flugvél á eftirminnilegan hátt. AFP.

Hún er móðir tveggja dætra og segir að hún hafi lent í einelti eins og flestir þeir sem eru ekki í miðju norminu (jafnvel þeir ekki sleppa að hennar sögn). Hún er þekkt fyrir að svara ómaklegri gagnrýni seint eða aldrei og segir: „Ég er bara rosalega hamingjusöm heima hjá mér með manninum mínum og börnum að leika mér á meðan einhver slefandi gagnrýnandi er að fá athygli fastur á svo vondum stað að ég get varla teygt mig í þær áttir.“

„Á meðan ég hef áhuga á að leika áhugaverðu vinkonuna sem leggur sig fram um að koma með skemmtilegan boðskap og halda í sanna sig þá verð ég að fá að vera ég. Ég kann ekkert annað!“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál