Tekst á við áföllin brosandi

Katrín Björk Guðjónsdóttir lætur ekkert stoppa sig.
Katrín Björk Guðjónsdóttir lætur ekkert stoppa sig.

Katrín Björk Guðjónsdóttir er 25 ára og er bataferli eftir þrjú heilaáföll. Um miðjan júní eru þrjú ár síðan hún fékk síðasta áfallið sem skildi hana eftir sem 22 ára með engan vöðvakraft. Hún var sannfærð um að láta þetta ekki slökkva þá drauma og væntingar sem hún var með. 

„Fyrstu vikurnar lifði ég í öndunarvél sem dældi ofan í mig öllu því lofti sem ég þurfti á að halda. Á þessum þremur árum hafa svo endalaust margir sigrar unnist þó ég nái ekki ennþá að mynda skiljanleg orð og hafi ekkert jafnvægi og get því hvorki talað né gengið. Þrátt fyrir að ég nái hvorki að tala né ganga án hjálpar frá einhverjum öðrum þá get ég setið við tölvuna og skrifað hjálparlaust niður allar jákvæðar hugsanir, óskir og væntingar mínar,“ segir Katrín Björk sem heldur úti blogginu katrinbjorkgudjons.com

Á blogginu eru veikindi hennar ekki aðalatriðið heldur skrifar hún sem stelpa í blóma lífsins. Hún ætlar að hleypa lesendum Smartlands inn í líf sitt.

Hér fyrir neðan er fyrsta færslan: 

Það sem ég ætla að gera í maí:

Nú er það svo greinilegt að sumarið er rétt handan við hornið. Allt líf handan glugganna vaknar með hverjum deginum sem líður, ég sé nánast daglegan mun á hvað grasið grænkar, blómin vakna og trén laufgast og grænka frá degi til dags. Ég þarf ekki mikla sól til að henda öllum þykku vetrarfötunum úr fataskápnum og setja sumarfötin í staðinn, fara í klippingu og dekur. Hér eru 10 atriði sem ég ætla að gera núna seinni partinn í maí.

Mig langar svolítið til að vera duglegri, en ég hef verið hingað til, að setja inn myndir og sýna líf mitt í story á Instagram. 

Sunday funday 😁✨

A post shared by KATRÍN BJÖRK GUÐJÓNS (@katrinbjorkgudjons) on May 13, 2018 at 6:32am PDT

Þegar ég var í skóla þá hafði ég það sem reglu að lokinni prófatörn, að mín biði góð bók sem fylgdi mér inn í sumarið. Í dag er ég ekki í neinum skóla og því fer ég ekki í erfiða prófatörn en mér finnst samt sem áður nauðsynlegt að taka á móti sumrinu með góða bók á milli handanna.

Ég hef verið að einbeita mér sérstaklega að því núna í maí að öðlast fyrri færni í að taka eitt skref. Hælinn kemur fyrst við jörðu svo spyrni ég táberginu frá jörðu, held svo ökklanum í réttri stöðu þangað til ég tek næsta skref. Einfalt en samt svo erfitt!

Fyrst það er enginn snjór að koma og trufla okkur með nærveru sinni þá ætla ég að færa það í aukana að ganga með stuðningi frá einhverjum öðrum úr bílnum og inn í æfingar.

Talandi um æfingar þá ætla ég að leggja áherslu á að þegar ég stend við rimlana og geri til dæmis jafnvægis æfingar  þá nái ég hælunum niður og standi í allan fótinn.

Ég elska sólina og það er orðið fast maí markmið hjá mér að ég ætla mér að nýta hvern einasta sólargeisla sem skín hingað í garðinn til bæði yndisauka og að auka á glaðværðinni. Ég nýt mín aldrei betur en þegar allt vaknar í kringum mig!

Í maí ætla ég að vera duglegri að nota spelkurnar þegar ég er bara heima að vinna.

Í enda maí þá ættuð þið að fylgjast vel með mér á Instagram því þá ætla ég að setja í gang minn fyrsta gjafaleik!

Stóra markmiðið mitt þennan mánuðinn og ég veit að þetta mun taka mig marga mánuði. Í maí ætla ég ætla að byrja að endurstilla sjálfan mig og taka mig í smá sjálfsskoðun, því ég geri það að hluta til ómeðvitað og líka til að líta betur út á myndum en þá reyni ég alltaf að fela veikleika mína. 

Loksins er þessi langþráði mánuður genginn í garð. Ég hef beðið eftir þessum mánuði full eftirvæntingar síðan ég opnaði pakka á aðfangadag sem var hvorki meira né minna en heil UTANLANDSFERÐ núna í maí! Ég er svo spennt og mér finnst ég vera svo endalaust heppin að eiga möguleika á því að skapa svona yndislegar minningar með fólkinu sem maður elskar!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál