Hvaða smáforrit bjarga lífinu?

mbl.is/Thinkstock

Flestir eru sammála um það að notkun snjallsíma getur aukið verulega áreiti í hinu daglega lífi og vilja sumir meina að síminn dreifi athyglinni frá því sem skiptir máli, þ.e. að vera í núinu og njóta stundarinnar. Mest notuðu forritin í lífi flestra snjallsímanotenda eru líklegast samfélagsmiðlarnir, notkun þeirra verður þó ekki gerð til umfjöllunar hér. 

Persónulega hef ég reynt að halda smáforritunum í lágmarki, takmarka mig við þau sem ég virkilega nota og veita mér gleði. Eins konar Marie Kondo-hugmyndafræði á símann. Fyrir utan samfélagsmiðla og tónlistarveitur eru nokkur forrit sem ég held upp á umfram önnur.

Ég nota öpp m.a. til að hugleiða (Calm), fræðist um eigin tíðahring (M. Cycles) og færi inn á innkaupalista (Buy me a Pie!). Ég get skannað inn mynd af plöntunum mínum (Picture This) sem segir mér um hæl af hvaða tegund þær eru og hvernig umhirðu þeirra skuli háttað með reglulegum tilkynningum. Ætti því enginn að þurfa að muna sjálfur að vökva plönturnar sínar lengur. Það er hreinlega app fyrir hverja athöfn lífsins. Þannig tók snjallsíminn við af bókum og símtólinu og hefur auðveldað og flækt líf okkar til skiptis. Í þessu öllu saman finnast auðvitað skemmtilegar mótsagnir. Það eru til öpp sem hjálpa þér við að halda þér frá símanum þegar þú hittir annað fólk (hið stórsniðuga Flora) og smáforrit sem sýnir hversu miklum tíma þú eyðir í símanum á degi hverjum (Moment – varúð, gætir fengið áfall).

Athyglisbresturinn og Netflix-áhrifin sem loða við mína kynslóð, þ.e. sú tilhugsun að alltaf sé eitthvað betra handan við hornið sem gerir það nær ómögulegt að halda sig við eina þáttaseríu, hefur líka haft áhrif á notkunina. Það er jafn auðvelt að eyða út og að ná sér í nýtt. Hvað sem því líður þekki ég það af eigin raun að sum forrit hafa burði til að auðvelda mér lífið og hjálpa mér að ná settum markmiðum.

Við fengum nokkrar íslenskar konur sem sinna margvíslegum störfum til að segja okkur frá því hvaða smáforrit í símanum þeirra auðveldar eða kryddar lífið þeirra með einhverjum hætti.

„Ég verð að segja Wunderlist. Ég bý í sveit og það er svo þægilegt að nota það til að safna upplýsingum fyrir það sem þarf að gera í næstu Selfoss- eða Reykjavíkurferð. Svo er ég með verkefnalista fyrir ýmis verkefni sem þarf að sinna í sveitinni, t.d. málningarvinnu. Einnig alla jólagjafalista. Svo er hægt að deila listunum með fólki eftir því sem við á.“

Matthildur María Guðmundsdóttir verkfræðingur.

„Ég held að Goodreads sé það smáforrit sem hefur haft jákvæð áhrif á líf mitt. Ég les töluvert meira og það auðveldar mér að finna innblástur að bókum til að lesa. Það er líka bara þægilegt í notkun og skemmtilegt að sjá hvað aðrir eru að lesa, sem gefur manni hugmyndir.“

Kristrún Kristinsdóttir rekstrarstjóri.

„Þegar ég ferðast erlendis finnst mér frábært að nota Easy Currency Converter. Það er einfalt og mjög hentugt, sérstaklega ef maður fer til margra landa með mismunandi gjaldmiðil á stuttum tíma.“

Snædís Björgvinsdóttir doktorsnemi.

„Ég myndi mæla með CityMaps2Go-appinu af því það er sennilega það sem ég nota mest á öllum ferðalögum mínum. Ég minnist þess þegar ég var að líma borgarkort inn í bækur til að líta ekki grunsamlega út á ferðalögum sem unglingur. Í appinu er svo ótrúlega þægilegt að geta pinnað niður alla áhugaverða staði, hvort sem það eru veitingastaðir, söfn eða sveittar djassbúllur.“

Melkorka Sigríður Magnúsdóttir verkefnastjóri.

„Ég geng mikið á fjöll og úti í náttúrunni og finnst gaman að velta fyrir mér nýjum leiðum. Wikiloc-forritið opnaði fyrir mér nýjan heim en þar eru leiðir um allan heim settar inn af fólki eins og mér og þér. Þarna fer ég oft og fæ hugmyndir að næsta fjalli sem ég ætla á og leiðinni sem er farin, ásamt því að setja inn sjálf nýjar leiðir. Einnig 112-smáforritið, sem er algjörlega nauðsynlegt þegar þú stundar mikla útivist. Að tékka sig inn og út eykur öryggið ef eitthvað skyldi koma upp á. Skyndihjálp er líka gott, hef ekki þurft að nota það ennþá sem betur fer en mæli með því að hafa í símanum.“

Inga Hlín Pálsdóttir forstöðumaður.

Simple Habit er hugleiðsluapp með fjölbreyttum og mislöngum hugleiðslum með mismunandi áherslum. Þar er hægt að nálgast fullt af upptökum frítt en þú getur líka borgað til að fá frekari aðgang. Ég er mest að nota 5 mínútna hugleiðslur til að grípa í. Mæli mjög með.“

Unnur Sverrisdóttir lyfjafræðingur.

 

Flo er að mínu mati nauðsyn fyrir allar konur. Það er þægilegt í notkun og auðveldar manni fyrst og fremst að fylgjast með tíðahringnum og sýnir hvenær egglos á sér stað. Ég man áður fyrr þegar maður var að reikna út og leggja á minnið. Það eina sem maður þarf að gera er að setja inn fyrsta dag blæðinga og appið sér um rest. Önnur snilld við forritið er að þar geturðu nálgast alls kyns upplýsingar um heilsu, pistla tengda tíðahringnum, kynlífi, kvenlíkamanum og fleira.“

Alda Grave flugfreyja.

 

„Ég stunda mikla líkamsrækt og finnst mikilvægt að halda utan um æfingarnar. Ég nota mikið Strava, sem mér finnst hvetjandi fyrir bæði hlaup og hjól. Forritið hlutar niður æfingarnar og tekur saman samanlagðan tíma fyrir hverja æfingu og sýnir mér á korti hvert ég fór. Get líka tengt það við t.d. hjartsláttarmæli. Svo er ég með úr sem ég tengi við smáforritið og koma æfingarnar einnig þangað inn“

Ingibjörg Elín Magnúsdóttir lögreglukona.

 

„Ég tel mig vera bókamanneskju og þegar get ég ekki lesið reyni ég að hlusta á bækur. Libby er smáforrit ætlað rafbókasafnsnotendum (þ.e.a.s. öllum sem eiga skírteini á bókasöfnum landsins). Úrval raf- og hljóðbóka í því finnst mér alveg frábært, sérstaklega vegna þess að appið er algjörlega ókeypis. Og hver kannast ekki við þá tilfinningu við að skila bókum of seint – það er einfaldlega ekki hægt með Libby því á eindegi er bókunum skilað sjálfkrafa“

Roberta Šoparaite bókavörður.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál