„Ég fann vaxandi löngun til að fríska upp á toppstykkið“

Arna Gerður Bang alþjóðastjórnmálafræðingur hefur starfað um árabil sem sérfræðingur …
Arna Gerður Bang alþjóðastjórnmálafræðingur hefur starfað um árabil sem sérfræðingur á alþjóðadeild nefndasviðs Alþingis. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Arna Gerður Bang alþjóðastjórnmálafræðingur hefur starfað um árabil sem sérfræðingur á alþjóðadeild nefndasviðs Alþingis. Hún lauk viðbótar diplómanámi á meistarastigi í opinberri stjórnsýslu í Háskóla Íslands í sumar. 

Arna Gerður Bang fór á sínum tíma í Háskóla Íslands og útskrifaðist þaðan með BA-gráðu í heimspeki með ítölsku sem aukafag.

„Heimspekin heillaði mig snemma, ekki síst stjórnmálaheimspeki og umhverfissiðfræði með sínum áleitnu og óþægilegu spurningum um umgengni okkar hvert við annað, aðrar dýrategundir og móður jörð. Ég nýtti tækifærið á meðan á náminu stóð og tók hluta þess sem Erasmus-skiptinemi í heimspeki við Middlesex University í London. Það var virkilega þroskandi reynsla og mæli ég eindregið með því að taka hluta náms erlendis sé það í boði. Dvölin í London ýtti undir enn frekari áhugi minn á endalausum pælingum um alþjóðastjórnmál, samskipti og siðfræði. Ég fann að mig langaði til að kafa dýpra í fræðin og lauk í framhaldinu meistaraprófi í Alþjóðastjórnmálafræði (MSc International Relations) í London School of Economics and Political Science (LSE).“

Hvernig lýsir þú vinnunni þinni?

„Vinnan mín sem sérfræðingur á alþjóðdeild Alþingis felst m.a. í því að veita þingmönnum og alþjóðanefndum faglega aðstoð á sviði alþjóðamála og undirbúnings fyrir alþjóðlega þingmannafundi hér heima og erlendis. Ég vinn þessa stundina aðallega með Íslandsdeildum þriggja alþjóðanefnda sem beina sjónum sínum að málefnum Sameinuðu þjóðanna, öryggis- og varnarmálum og norðurslóðamálum.“

Hvers vegna viðbótar diplómanám í opinberri stjórnsýslu?

„Ég fann vaxandi löngun til að fríska upp á toppstykkið og takast á við hugarleikfimi á nýjum sviðum sem gætu nýst mér bæði í leik og starfi. Mig langaði til að dýpka skilning minn fræðilega á stjórnun, stjórnsýslunni og ákvarðanatöku, án þess þó að minnka við mig vinnu. Það hentaði því vel að skrá sig í diplómanám á meistarastigi í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands með vinnu og klára það á viðráðanlegum hraða. Að því loknu er svo hægt að taka stöðuna um það hvort maður vilji halda áfram og fá námið metið að fullu inn í MPA-námið (meistaranám í opinberri stjórnsýslu) í sama skóla.“

Örnu langaði að kafa dýpra í fræðin sem hún var …
Örnu langaði að kafa dýpra í fræðin sem hún var að læra og lauk í framhaldinu meistaraprófi í Alþjóðastjórnmálafræði (MSc International Relations) í London School of Economics and Political Science (LSE). mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hvernig fannst þér námið?

„Mér fannst það eflandi, gefandi og gleðjandi. Það spilaði vel saman við meistaragráðuna mína í alþjóðastjórnmálafræði og frá fyrsta áfanga naut ég þess að sökkva mér ofan í námið og finna sömu ástríðuna og áður fyrir því að uppgötva og skilja ný fræði. Að bæta við sig nýrri þekkingu og ná settu marki er svo nærandi og gaf mér aukið hugrekki til að spyrja nýrra og krefjandi spurninga.“

Hvað kom á óvart?

„Kannski helst hvað námsefnið var dýnamískt og frjótt og hver einasti áfangi gagnlegur. Verkefnin voru raunhæf og endurspegluðu íslenskan veruleika á skemmtilegan og krefjandi hátt.“

Hvernig sérðu fyrir þér að nota það?

„Námið breikkaði starfsmöguleika mína og uppfærði ferilskrána mína á styrkjandi hátt. Það hefur eflt mig í starfi á ýmsa vegu; aukið sjálfstraust og fengið mig til að horfa út fyrir boxið og skoða hlutina frá nýjum sjónarhornum. Það er svo hollt að stíga aðeins út fyrir þægindarammann og hrista aðeins upp í hlutunum. Það kemur í veg fyrir stöðnun og ýtir undir og nærir forvitnina sem býr í okkur öllum.“

Hvernig er lífið utan vinnu?

„Glimrandi gott og fallegt. Þó að vellíðan í vinnu sé ómetanleg er dýrmætasti tíminn samt klárlega með fjölskyldu og vinum.“

Hvað finnst þér áhugavert að gera?

„Ég hef alltaf haft gríðarlegan áhuga á því að heimsækja ný landsvæði og menningarheima. Að upplifa það hvernig fólk hagar lífi sínu á mismunandi vegu eftir heimshlutum finnst mér heillandi og áhugavert. Fjölskyldan mín er þó helsta áhugamál mitt og veit ég ekkert betra en að eiga stundir með henni. Ekki skemmir fyrir ef hægt er að samtvinna þær stundir með hinu stóra áhugamálinu mínu sem eru ferðalög. Að ferðast um heiminn hefur verið samofið einkalífi mínu og vinnu um árabil og þykir mér það dýrmæt forréttindi.“

Áttu gott ráð fyrir þá sem langar að bæta við sig í námi?

„Já, ekki hika við að kanna málið og taka fyrsta skrefið. Það er ótal margt í boði hjá menntastofnunum og háskólum og oft eru vinnuveitendur tilbúnir að koma til móts við starfsfólk varðandi sveigjanleika og endurmenntun. Þegar ég byrjaði í náminu fannst mér gott að fara ekki of geyst af stað, án þess þó að missa marks á endapunktinum, sem var að klára námið innan ákveðins tímaramma.“

Er stjórnsýsla skemmtileg?

„Ef þú hefur gaman af alls konar starfsemi sem snýr að því að framfylgja stefnu stjórnvalda hverju sinn, þá er hún dúndurskemmtileg.“

Er vinnustaðurinn góður?

„Eftir 15 fín ár starfandi á skrifstofu Alþingis svara ég því heilshugar játandi. Þar starfar afburðahæft og yndislegt fólk eftir góðum gildum. Mér þykir virkilega vænt um vinnustaðinn minn.“

Hvað er menntun í þínum huga?

„Mennt er máttur, endurmenntun er ofurmáttur!“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál