Hellti sér í námið eftir skilnaðinn

Benedikt Jón Sigmundsson er hér ásamt syni sínum. Hann hóf …
Benedikt Jón Sigmundsson er hér ásamt syni sínum. Hann hóf háskólanám 34 ára og er enn að. mbl.is/Kristinn Magnússon

Benedikt Jón Sigmundsson hóf háskólanám 34 ára og hefur stundað nám síðan með fullri vinnu. Námsgleðin hefur heldur betur leitt hann á nýjar slóðir og líf hans tekið algjöra u-beygju.

„Ef einhver hefði sagt mér fyrir nokkrum árum að ég ætti eftir að enda með tvær grunngráður úr háskóla sem og meistaragráðu hefði ég líklega talið að viðkomandi væri fárveikur og þyrfti nauðsynlega að taka lyfin sín,“ segir Benedikt Jón brosandi og hristir höfuðið. Lengi vel hafði hann lítinn áhuga á lærdómi og kláraði ekki nema nokkrar annir í framhaldsskóla. Þegar hann var 23 ára tók hann rafvirkjann. Ekki endilega af því að hann hafði sérstakan áhuga á faginu heldur frekar til þess að læra einhverja iðn því bóknám átti ekki við hann, a.m.k. ekki á þessum tíma, en það átti sannarlega eftir að breytast.

Nám með fullri vinnu

„Ég vann sem rafvirki hér og þar eftir námið en fluttist svo á Austurland og fór að vinna hjá Alcoa. Á þessum tíma bauð Alcoa upp á það að greiða fyrir nám í rafiðnfræði og við skráðum okkur nokkrir samstarfsfélagar í fjarnám í Háskólanum í Reykjavík.“ Námið kveikti þorsta í frekara nám og Benedikt fór að velta fyrir sér hvort rafvirkjunin væri kannski ekki hans rétta fag. „Eftir að ég lauk iðnfræðinni árið 2015 fluttum við fjölskyldan til Reykjavíkur og ég skráði mig í nám í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun hjá Endurmenntun Háskóla Íslands, samhliða fullri vinnu hjá Ískraft.“ Hann segir að námið hafi algjörlega sett hann út fyrir þægindarammann og opnað augu hans fyrir ýmsum takmörkunum. „Ég fann að leiðtogahlutinn átti vel við mig. Ég hafði áður verið fyrirliði á viðhaldsvakt hjá Alcoa. Mig langaði í stjórnunarstöðu en vantaði reynslu og menntun og fann að meira nám gæti styrkt mig.“

Þroskandi og gefandi

Benedikt var þó varla byrjaður í verkefnastjórnun þegar hann skráði sig einnig í kvöldnám í viðskiptafræði. Svo vel vildi til að námið skaraðist ekki við verkefnastjórnunina. Benedikt hélt ótrauður áfram og vorið 2019 kláraði hann BS-nám í viðskiptafræði. Fram að þeim tíma hafði hann alltaf unnið störf sem tengdust hans upphaflegu menntun, rafvirkjun, en eftir að hann útskrifaðist sem viðskiptafræðingur skipti hann algjörlega um starfsvettvang og réð sig sem verkefnastjóra til Sýnar. „Í fyrsta sinn á ævinni finnst mér eins og ég sé kominn á rétta braut starfslega. Ég hafði í raun aldrei áhuga á rafmagninu en að stýra verkefnum finnst mér ótrúlega gaman. Þessa gleði og spennu hef ég ekki áður upplifað í starfi.“

Einhverjir hefðu látið staðar numið eftir sjö ára háskólanám með vinnu (rafiðnfræði í þrjú ár og viðskiptafræði í fjögur) en ekki Benedikt, sem hóf meistaranám í verkefnastjórnun hjá Háskóla Íslands í haust. Hann segist vera þakklátur vinnuveitandanum fyrir að gefa sér sveigjanleika í vinnunni til þess að geta sinnt náminu en þetta er í fyrsta sinn sem Benedikt stundar háskólanám í dagskóla. „Ég vil nú ekki líta á mig sem eilífðarstúdent en þetta er bara svo gaman. Þetta hefur verið ótrúlega þroskandi og gefandi auk þess sem félagsskapurinn hefur verið frábær.“

Námið kom honum í gegnum skilnaðinn

Að stunda fulla vinnu með námi svona lengi hefur þó krafist fórna. Benedikt vill reyndar ekki kalla breytingarnar sem hann hefur gert á lífi sínu fórnir. Hann viðurkennir að hann eigi kannski ekki mikið félagslíf fyrir utan vinnu og skóla en honum finnst hann ekki vera að missa af neinu. „Hvaða sjónvarpsseríu?“ bætir hann hlæjandi við. Hann segir að í raun hafi námið bjargað sér á svo marga vegu. „Þegar ég skildi við barnsmóður mína leitaði ég huggunar í náminu og sökkti mér enn meira í það. Ég myndi segja að námið hefði í raun komið mér í gegnum skilnaðinn.“ Sonur þeirra er fimm ára gamall og Benedikt segir það vissulega hafa verið flóknara að vera í kvöldnámi þegar sonurinn er til skiptis hjá þeim viku og viku. „Barnsmóðir mín er líka í námi og við gerðum með okkur samkomulag þess efnis að ég tek soninn einn dag í hennar viku og hún tekur hann einn dag í minni viku. Fyrir vikið hef ég náð 75% mætingu í skólanum.“

Allt nám nýtist

Ekki er hægt að enda spjallið á öðru en að spyrja Benedikt í hvaða nám hann fari næst og hvaða ráð hann hafi til annarra sem eru í hans sporum? „Ég var nú bara að byrja í meistaranáminu mínu í verkefnastjórnun svo ég verð í því í vetur og næsta vetur. Ætli ég láti það ekki duga. Mig hefur þó alltaf langað til að taka MBA-námið en sjáum hvað setur. Varðandi ráð til annarra þá myndi ég segja að það væri aldrei of seint að byrja. Ég hóf mitt háskólanám 34 ára. Ég held að hræðslan við að mistakast haldi fyrst og fremst aftur af fólki. Hins vegar má ekki gleyma því að allt nám, þótt þú farir ekki beint að vinna við það, nýtist þér einhvers staðar í lífinu og leiðir þig oft inn á alveg nýjar brautir. Ég hefði til dæmis aldrei endað hér í dag nema af því að ég tók þetta skref hjá Alcoa á sínum tíma að bæta við mig iðnfræðingnum þó að kannski megi líka segja að það nám hafi verið hliðarskref.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál