Heiðruðu minningu Guðrúnar Ögmunds með bjór

Guðrún Ögmundsdóttir féll frá í lok árs 2019.
Guðrún Ögmundsdóttir féll frá í lok árs 2019. mbl.is/Þorvaldur Örn Kristmundsson

Bjórinn Gunna Ö. fór í verslanir í dag en bjórinn heitir eftir baráttukonunni Guðrúnu Ögmundsdóttir sem lést þann 31. desember 2019. Gunna Ö. er brugguð af hinu nýstofnaða félagi KONU félagi kvenna í bruggi. KONA færði Gísla Víkingssyni, ekkli Guðrúnar, og fjölskyldu hennar Gunnu Ö. í dag. 

„Þetta er bjór sem við brugguðum saman á alþjóðlegum baráttudegi kvenna, 8. mars síðastliðinn. Þetta er í þriðja skipti sem konur í bjórbransanum á Íslandi hittast og brugga bjór saman,“ segir Ásta Ósk Hlöðversdóttir, formaður félagsins. Ásta hefur verið í bruggbransanum á Íslandi um nokkurra ára skeið og er nú bruggmeistari í Ölvisholti.

Bruggkonur á Íslandi tileinka bjórinn ár hvert kvenhetjum Íslandssögunnar sem hafa veitt þeim innblástur. Ásta segir að bruggheimurinn sé ansi karllægur og tilgangur félagsins sé að styðja við konur í bransanum. 

Ásta Ósk Hlöðversdóttir, formaður KONU, afhendir Gísla Víkingssyni, ekkli Guðrúnar …
Ásta Ósk Hlöðversdóttir, formaður KONU, afhendir Gísla Víkingssyni, ekkli Guðrúnar Ögmundsdóttur, Gunnu Ö. Ljósmynd/Aðsend

„Þetta hefur verið okkar tækifæri til að spjalla saman um hvernig það er að vera kona í þessum bransa og hvaða sérstöku áskoranir við þurfum oft að takast á við,“ segir Ásta. 

Bruggkonurnar nýttu tímann á meðan samkomubanni stóð til þess að stofna félagið og nú 3 mánuðum eftir að þær hittust á alþjóðlegum baráttudegi kvenna er Gunna Ö. tilbúin. Gunna Ö. er Pale Ale bjór kryddaður með Pink Boot Society humlum.

„Það er ekki nauðsynlegt að vera karl til að brugga bjór og bjórinn er allra. Ég held að það sé nú búið að breytast aðeins á síðustu árum og bestu bjórnördarnir í dag eru konur,“ segir Ásta.

Gunna Ö. er Pale Ale kryddaður með Pink Boot Society …
Gunna Ö. er Pale Ale kryddaður með Pink Boot Society humlum. Ljósmynd/Aðsend

Guðrúnu Ögmundsdóttur ættu flestir að kannast við en hún var áberandi í baráttu kvenna og hinsegin fólks. Hún hlaut ótal viður­kenn­ing­ar fyr­ir brautryðjanda­störf í þágu mann­rétt­inda, m.a. ridd­ara­kross hinn­ar ís­lensku fálka­orðu 17. júní 2019 fyr­ir fram­lag í þágu mannúðar og jafn­rétt­is­bar­áttu hinseg­in fólks.

Guðrún var fyrst kjör­in til setu í borg­ar­stjórn fyr­ir Kvenna­list­ann árið 1992 og fyr­ir Reykja­vík­urlist­ann 1994-1998. Hún var kjör­in í borg­ar­stjórn Reykja­vík­ur fyr­ir Sam­fylk­ing­una árið 2017. Guðrún var kjör­in á þing fyr­ir Sam­fylk­ing­una í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi árið 1999 og sat á þingi til árs­ins 2007.

Gísli Víkingsson fékk kassa af Gunnu Ö. afhendan í dag …
Gísli Víkingsson fékk kassa af Gunnu Ö. afhendan í dag frá KONU. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál