Rúrik beðinn um að gefa sæði eftir HM

Rúrik Gíslason varð heimsfrægur á einni nóttu á HM 2018.
Rúrik Gíslason varð heimsfrægur á einni nóttu á HM 2018. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Rúrik Gíslason segist í viðtali við Sölva Tryggvason hafa heyrt alls konar sögur um sjálfan sig frá Íslandi eftir að hann varð heimsfrægur á einni nóttu á HM 2018.

„Ég hef heyrt margar margar sögur um mig sem eru ekki endilega sannar, þannig að ég reyni að tileinka mér að vera alltaf almennilegur þegar ég hitti fólk, þannig að þeir sem hitta mig byggi álit mitt á því hvernig ég kem fram við fólk sem ég umgengst,“ segir Rúrik, sem segist jafnframt eiga mjög erfitt með að ræða um Instagram frægðina, af því að honum finnist hann hljóma eins og hann sé uppfullur af sjálfum sér þegar þetta er rætt. 

„Mér finnst rosalega erfitt að tala um þetta án þess að hljóma eins og einhver „douchebag“….mér finnst ógeðslega erfitt að tala um þetta…. Ég sé sjálfan mig alltaf eins og ég sé einhver svaka kall þegar ég er að tala um þetta,“ segir Rúrik í viðtalinu við Sölva, en viðurkennir að þetta hafi verið verulega furðulegt tímabil.

„Þetta var mjög athyglisverður tími í mínu lífi. Mikið af alls konar skilaboðum og bónorðum og hvort ég væri ekki til í að gefa sæðið mitt…mjög margir sem eru á Instagram eru mjög hreinskilnir af því að þeir eru á bakvið símann sinn,“ segir Rúrik.

Þetta var mjög sérstakt tímabil í mínu lífi. Við fórum til Miami eftir HM og ég þurfti alls staðar að vera í myndatökum og það var sérstakt að vera kominn út fyrir Ísland og vera kominn í einhverja stjörnugeðveiki,“ segir Rúrik, sem lenti síðan í því í Brasilíu að hópur af fólki beið fyrir utan hótelið hans með plaköt og myndir af honum til að árita.

Sem fyrr segir hefur mikið gengið á hjá Rúrik síðastliðið ár, þar sem hann misst bæði móður sína og æskuvin úr krabbameini. Félag hans í Þýskalandi ætlaði að draga hann fyrir dómstóla vegna samningsbrots eftir að hann fór heim til að vera við hlið móður sinnar í lokabaráttunni. Rúrik er nú á tímamótum, kominn heim frá Þýskalandi, samningslaus og ekki búinn að ákveða hvað tekur við.

Í viðtalinu við Sölva ræðir Rúrik meðal annars um móðurmissinn, tímabilið sem nú fer í hönd, álit annarra og margt fleira.



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál