„Ég elska að vera heima!“

Ebba Guðný Guðmundsdóttir.
Ebba Guðný Guðmundsdóttir.

Ebba Guðný Guðmundsdóttir er þúsundþjalasmiður. Hún er leikkona, sjónvarpskona, kennari, fyrirlesari og bókaútgefandi svo eitthvað sé nefnt. Hún elskar að vera heima með fjölskyldunni og reynir að vera góð við sig daglega. 

Hvað ertu að fást við núna?

„Sitt lítið af hverju. Ég hef verið að leika svolítið og finnst ekkert skemmtilegra eða betra en það. Svo er ég alltaf með einhverja fyrirlestra, að skrifa greinar, auglýsi vörur sem ég nota sjálf og held að geti gagnast öðrum, deili góðum ráðum og uppskriftum sem hafa nýst mér vel og svo mætti lengi áfram telja.“

Hvaða krem notar þú daglega?

„Taramar-kremin. Mér finnst þau dásamleg. Það má borða þau en ég ber þau bara á mig eins og á að gera. Þau eru semsagt lífræn, lífvirk og hrein.“

Áttu þér uppáhaldsmorgunmat?

„Ég get því miður ekki borðað morgunmat. Ég man ekki alveg hvenær mér fór að líða illa af morgunmat. Ég borða þess vegna um ellefu eða tólf, en alltaf stofuheitt eða volgt vatn þegar ég vakna. Stundum fæ ég mér einnig kókosvatn. Síðan fæ ég mér 1 dl af lífrænum rauðrófusafa og kreisti sítrónu út í hann og set líka eina matskeið af Bragg-eplaedikinu út í. Enda svo á svörtum pipar og collagen-i frá Feel Iceland. Ég drekk þetta með röri og skola vel tennurnar á eftir. Svo set ég stundum engifer eða turmeric-skot út í líka. Annað sem ég geri mikið er að setja eina teskeið af L-glutamine-i í smá vatn og skella í mig á morgnana á fastandi maga. Mér hefur þótt það gera gott fyrir magann minn.“

Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn heima?

„Ég er alveg svakalega heimakær og er heimilið allt í miklu uppáhaldi. Ég er mest í eldhúsinu og þar vil ég hafa allt hreint og fínt. Þótt eitthvað annað sé í ólagi heima. Svo finnst mér líka dásamlegt í sófanum að horfa á eitthvað skemmtilegt, uppi í rúmi að lesa bók eða hugleiða. Ég elska að vera heima.“

Hvað keyptir þú þér síðast inn á heimilið?

„Ég keypti mér nýjan stól í stofuna eftir smá breytingar.“

Hvernig æfingar gerir þú?

„Ég er nýbyrjuð í styrktarþjálfun í Train Station og gæti ekki verið ánægðari með þá stöð. Það er eins og að vera í einkaþjálfun fyrir mun lægra verð. Þar eru engir speglar á veggjum sem mér finnst frábært og eigendur og starfsfólk alltaf til staðar tilbúin að aðstoða mann. Það finnst mér algjörlega meiri háttar. Annars hef ég alltaf haft gaman af því að ganga, svo tek ég einstaka spretti inn á milli ef ég nenni. Ég geri stundum kundalini jóga hér heima eða tabata jóga, eftir námskeiði sem ég hef notað mikið og keypti á síðunni DailyOm. Ég mæli með þeirri síðu. Þar keypti ég líka 40 hugleiðslur sem ég er búin að nota út í eitt, 40 days of transformation through meditation með David J.“

Áttu þér uppáhaldshönnuð?

„ELLA var mikið uppáhald. Annars vil ég bara að flíkin fari mér vel, sé þægileg og endist. Mér finnst yfirleitt ekki gaman í búðum. Mér þætti best ef einhver keypti á mig föt. Það væri frábært, en að því sögðu hef ég aldrei eytt miklu í fatakaup og á mér ekki uppáhaldsfatamerki. Ég reyni að kaupa umhverfisvænar flíkur ef ég kem því við og dóttir mín vill helst kaupa allt notað.“

Hver er uppáhaldsbúðin þín?

„Það er Macron, mæli með henni við alla.“

Hvað gerir þú með skemmtilegasta fólkinu þínu?

„Mér hafa þótt ferðalögin okkar öll svo skemmtileg og dýrmæt. Ég er þakklát fyrir að hafa getað ferðast með fjölskyldunni minni. En svo finnst mér þessir hversdagslegu hlutir eiginlega langbestir. Kvöldmaturinn þegar við náum að vera öll að spjalla, það er orðið flóknara reyndar í dag, þegar allar æfingar lenda á matmálstímum. Ég á tvo fullorðna unglinga núna. Ég kann líka að meta að horfa á bíómynd eða þátt með fólkinu mínu. Þegar við erum öll heima um helgar eru líka góðar stundir. Hér heima er lítið um hróp og köll og við erum yfirleitt vinir og þá þarf ekki mikið meira til að lífið sé gott, nema kannski spelt-vöfflur.“

Hvernig dekrar þú við þig?

„Ég fer í nudd og nálastungur hjá Kolbeini vini okkar, hugleiði, borða hollt og er hætt að vinna eftir kvöldmat. Ég passa upp á að sofa nóg og reyni að vera góð við Ebbu, enda er hún alltaf að gera sitt besta. Eins og við öll.“

Hvert er uppáhaldssnjallforritið?

„Ég á í svona ástar/haturssambandi við samfélagsmiðla. Það er margt gott þar og upplífgandi, fyndið og fræðandi en maður þarf að reyna að stilla notkuninni í hóf samt. Ég nota mest Facebook og Instagram.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál