Byggði upp tvö fyrirtæki fyrir 25 ára aldur

Tanja Ýr Ástvaldsdóttir er gestur Öldu Karenar í öðrum þætti …
Tanja Ýr Ástvaldsdóttir er gestur Öldu Karenar í öðrum þætti af Lífsbiblíunni. Skjáskot/YouTube

Fegurðardrottningin Tanja Ýr Ástvaldsdóttir byggði upp tvö fyrirtæki áður en hún varð 25 ára. Tanja er gestur Öldu Karenar Hjaltalín í þætti tvö af Lifsbiblían Hlaðvarp.

Tanja Ýr hefur núna unnið í rúmt ár að nýju fyrirtæki Glamistahair sem selur hárlengingar og gervitögl. Ferlið að búa til vörumerki og gæðavörur tekur tíma en Tanja Ýr er ekki að flækja hlutina fyrir sér og er þolinmóð á meðan hún fullkomnar vörumerkin sín því hún segist vita að það er engin endastöð, þess vegna skiptir öllu máli að njóta ferðarinnar sem að skapa vörumerki er.

Gott er að taka fram að engar manneskjur meiddust við gerð þessara hárlenginga. Tanja Ýr ræðir að öll athygli er góð athygli ef þú kannt að fara með hana, stofna vörumerki, kaupa villur á spáni og að setja sjálfsvirðið sitt hátt áður en þú ferð að takast á við heiminn.

Þáttinn má hlusta á hér fyrir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál