Lögreglufulltrúi í MBA-námi til að þekkja styrkleika betur

BA-ritgerð Haraldar Loga fjallaði um skaðavísa eða Crime Harm Index …
BA-ritgerð Haraldar Loga fjallaði um skaðavísa eða Crime Harm Index en það var þróað í Cambridge-háskólanum og fjallar um að meta brot út frá alvarleika þeirra en ekki einungis fjölda þeirra.

Haraldur Logi Hringsson lögreglufulltrúi segir mikilvægt að vera góður í samskiptum í vinnunni. Hann er í MBA-námi við Háskóla Íslands og segir það góða viðbót við menntun sína. Hann er lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra, sinnir skipulagningu á þjálfun og búnaðarmálum hjá því embætti. Hann er einnig hluti af aðgerðastjórn á Norðurlandi eystra þar sem hann sinnir upplýsingagjöf og tæknimálum.

Hann er búsettur á Akureyri, kvæntur Ingibjörg Elínu Halldórsdóttur og á 21 árs dóttur og 15 ára gamlan son. Hann lauk námi í Lögregluskóla ríkisins árið 2002 og hefur starfað í lögreglunni í tæp 20 ár. Hann var í fyrsta hópnum sem útskrifaðist frá Háskólanum á Akureyri með BA í lögreglu- og löggæslufræði árið 2019 en lögreglunám á Íslandi var fært upp á háskólastig árið 2016. Hann er sá eini sem lokið hefur BA-gráðu í lögreglu- og löggæslufræði við Háskólann á Akureyri og námi frá Lögregluskóla ríkisins. BA-ritgerð Haraldar Loga fjallaði um skaðavísa eða Crime Harm Index en það var þróað í Cambridge-háskólanum og fjallar um að meta brot út frá alvarleika þeirra en ekki einungis fjölda þeirra. Að loknu BA-náminu hóf hann MBA-nám við Háskóla Íslands og er byrja á lokaönninni í náminu meðfram fullri vinnu.

„Ég er alinn upp á Svalbarðseyri skammt frá Akureyri. Fór í Menntaskólann á Akureyri. Var mikið í íþróttum á yngri árum og með gríðarlegt keppnisskap. Það mátti lítið fara út fyrir reglur í leikjum og lét ég oft vel í mér heyra ef einhver fór ekki eftir reglunum, þótt það væri jafnvel bara í fótbolta úti á lóð. Í MBA-náminu vorum við látin taka persónuleikaprófið Myers-Briggs Type Indicator þar sem kom í ljós að ég er innhverfur (e. introvert), hagnýtur, rökvís og með ákveðna stefnu. Ég held að þetta sé bara ágætislýsing á mér. Fólk eins og ég á það víst til að velja sér lögregluna, svo kannski hefur val mitt á starfsgrein ekki komið svo mikið á óvart.“

Alltaf þótt lögreglustarfið áhugavert

Hvers vegna valdir þú þér að vera lögregla?

„Þegar ég kom út úr menntaskóla tók ég eitt ár í tölvu- og upplýsingatækni í Háskólanum á Akureyri en fannst það nám ekki vera fastmótað og var ekki viss um hvað það væri sem mig langaði almennilega að gera. Þá sá ég auglýst eftir sumarafleysingamönnum í lögreglunni á Akureyri en mér hefur alltaf fundist það starf áhugavert en faðir minn vann sem héraðslögreglumaður á Húsavík á ballvöktum þegar ég var yngri. Ég hafði unnið sem dyravörður á skemmtistöðum á Akureyri með seinni hluta Menntaskólans og meðfram Háskólanum og var orðinn mjög vanur að eiga við fólk í misjöfnu ástandi. Ég hafði einnig gaman af samskiptum við fólk og að leysa úr vandamálum sem komu upp. Ég taldi lögregluna vera gott tækifæri til að fá einstaka reynslu og sló til. Ég fékk svo framlengingu eftir sumarið og sótti um í lögregluskólanum árið 2002.“

Hvernig lýsir þú starfinu þínu?

„Kennari í lögregluskólanum árið 2002 sagði eftirminnilega að maður er ekki að velja bara starf maður er að velja sér lífsstíl og það er mikið til í því að mínu mati. Starfið er gríðarlega fjölbreytt og krefjandi. Það er auðvelt að þykja vænt um þetta starf en stundum getur það haft mjög djúp áhrif á mann. Því er mikilvægt að menn fái þekkingu og reynslu til að leysa hvert viðfangsefni á sem bestan hátt. Þar kemur þjálfun og fræðsla sterkt inn í, en ég sinni því hlutverki innan lögreglunnar í dag.“

Finnst MBA-námið nýtast vel

Haraldur Logi hafði heyrt af MBA-náminu við Háskóla Íslands en óraði ekki fyrir því að hann færi í það sjálfur.

„Að ljúka BA-gráðu í lögreglufræðinni gaf mér það tækifæri og eftir hvatningu frá konunni minni ákvað ég að sækja um. Það var stökk langt út fyrir þægindarammann og ljóst að þetta yrði mikil áskorun. Móttökurnar inn í námið voru mjög góðar og fagmannlega staðið að öllu. Strax eftir fyrstu kennslustundirnar kom í ljós einn besti hlutinn við námið en það er hópurinn sem maður nú tilheyrir. Það er mikil hópavinna í náminu og að vinna með svona flottu fólki hefur reynst mjög lærdómsríkt og gefandi. Umræður og umfjöllun ýmissa mála í tímum þar sem meðal annars reynsla einstaklinga innan hópsins fær að njóta sín meðfram kennsluefninu gerir þetta nám mjög öflugt. Námið er tvö ár þannig að það er hægt að sinna því meðfram starfi. Kennsla er aðra hverja helgi á föstudegi og laugardegi. Maður öðlast mikla persónulega færni og fær þjálfun á sviði rekstrar og viðskipta undir leiðsögn reynslumikilla kennara og heimsóknir gestafyrirlesara víðs vegar að úr atvinnulífinu gera þetta nám mjög innihaldsríkt.“

Hvernig mun námið nýtast þér í framtíðinni?

„Námið hefur hjálpað manni að átta sig betur á eigin styrkleikum og veikleikum sem skiptir miklu máli í réttri ákvarðanatöku. Það hefur hjálpað mér mikið í að vinna í ólíkum hópum og styrkt mig í lausnamiðaðri hugsun. Að nýta sér upplýsingar og gögn til að greina vandamál og finna lausnir er stór hluti af náminu og það mun nýtast vel í leik og starfi. Vonandi verður það til þess að maður fái spennandi verkefni og tækifæri til að láta gott af sér leiða.“

Haraldur Logi segir lögreglustörfin gefa ákveðna sýn á lífið og tilveruna.

„Mannleg samskipti eru stærsti hluti af þessu starfi og ef samskipti eru góð hvar svo sem sá vettvangur er þá ganga hlutir oft best.“

Haraldur Logi er með sterk gildi í lífinu og er fjölskyldan þar í fyrirrúmi.

„Í MBA-náminu fengum við verkefni að greina hópafélaga okkar og leggja fyrir spurningar til að finna út gildi viðkomandi. Atriðin sem hópafélagarnir mínir fundu út hjá mér voru áreiðanleiki og öryggi auk þess að vera mikill fjölskyldumaður.“

Haraldur Logi Hringsson lögreglufulltrúi segir mikilvægt að vera góður í …
Haraldur Logi Hringsson lögreglufulltrúi segir mikilvægt að vera góður í samskiptum í vinnunni.

Mikilvægt að lögreglan taki réttar ákvarðanir í aðstæðum

Nú eru margir hræddir við lögregluna, hvernig getum við með viðtalinu brúað þetta bil á milli ykkar og almennings?

„Lögreglan á Íslandi nýtur mikils traust samkvæmt könnunum og við eigum að keppast við að halda því þannig. Það er mikilvægt að lögreglumenn átti sig strax á er þeir byrja í þessu starfi að okkur er falin ábyrgð á gríðarlegu valdi í lögreglunni. Við verðum að bera virðingu fyrir því sem við erum að gera og fyrir því fólki sem við eigum í samskiptum við.

Ég hef trú á að flestir sem velja að sinna þessu starfi vilji að allir séu sem öruggastir. Ég kynntist því fljótlega að þeir sem töldust harðastir í þessu starfi voru miklir fjölskyldumenn og hinir ljúfustu þótt þeir virkuðu eflaust á köflum eins og vélmenni.

Frá því ég byrjaði í lögreglunni hefur orðið mikil breyting og fleiri konur komnar inn í starfi sem er fagnaðarefni og góð þróun.“

Haraldur Logi segir að sem þjálfari lögreglumanna sjálfur hafi hann það alltaf að markmiði að þjálfa fólk þannig að það taki réttar ákvarðanir á því augnbliki sem ákvörðunin er tekin.

„Aðstæður eru breytilegar og við verðum að vera fagmannleg í öllum aðstæðum. Það getur verið allt frá smávægilegum afskiptum upp í stórar ákvarðanir þar sem beiting valds er nauðsynleg.

Það er mikilvægt að notuð verði þekkingarmiðuð löggæsla til að vinnan verði hnitmiðaðri og vandaðri.“

Ef þú gætir breytt einhverju einu í heiminum, hvað væri það?

„Á þessari stundu að við myndum ráða niðurlögum þessarar veiru en almennt hugsa ég mikið um mikilvægi þess að auka jafnrétti í heiminum.“

Haraldur var meðfram námi sínu í Háskólanum á Akureyri á sendifulltrúanámskeiði Rauða krossins sem hann og lauk.

„Mig hefur lengi langað að komast utan í sérverkefni sem tengjast þessari menntun minni.“

Mikið álag í vinnunni vegna veirunnar

Hvernig var árið 2020 fyrir þig persónulega?

„Árið 2020 einkenndist af verkefnum sem tengd eru kórónuveiru-faraldrinum. Í upphafi faraldurs var farið í að yfirfara áætlanir og sjá til þess að við yrðum eins reiðubúnir og hægt er að takast á við þetta óvissuverkefni.

Mitt hlutverk innan aðgerðastjórnar á Norðurlandi eystra var að miðla upplýsingum út til fólks um fjölda tilfella á okkar svæði og um þær sóttvarnaaðgerðir sem verið var að grípa til vegna ástandsins. Við fengum fjöldann allan af smitum seinni part sumars og tók það mikið á. Vinnustaðnum var skipt upp og mikið álag var á fólki, sem hefur staðið sig frábærlega vel.

Það er ekki auðvelt að vera í fullri vinnu og í meistaranámi í Háskólanum en með stuðningi fjölskyldunnar og yfirmanna gengur það upp og er ég mjög þakklátur fyrir það.“

Hvað vonarðu að árið 2021 beri í skauti sér?

„Ég vona eins og flestir að við verðum laus við þessa veiru og drögum ákveðinn lærdóm af þessu ástandi sem búið er að ríkja.“

Í MBA - náminu heimsóttu nemendur IESE viðskiptaháskólann.
Í MBA - náminu heimsóttu nemendur IESE viðskiptaháskólann. mbl.is
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál