Birgitta Líf fetar í fótspor foreldra sinna

Birgitta Líf Björnsdóttir stefnir að því að opna skemmtistaðinn b5 …
Birgitta Líf Björnsdóttir stefnir að því að opna skemmtistaðinn b5 að nýju. Samsett mynd

Athafnakonan og World Class-erfinginn Birgitta Líf Björnsdóttir stefnir að því að enduropna skemmtistaðinn b5 við Bankastræti í miðborg Reykjavíkur. Birgitta staðfesti fréttirnar við Smartland en vildi ekki tjá sig nánar á þessu stigi. 

B5 var lokað á síðasta ári vegna heimsfaraldursins en skemmtistaðurinn var einn sá fjölsóttasti í Reykjavík fyrir faraldurinn. Eigendur b5 lentu í miklum rekstrarörðugleikum á síðasta ári og sögðu meðal annars frá því að þeir hefðu ekki getað greitt leigu í þrjá mánuði. 

Smartland greindi frá því í nóvember á síðasta ári að Bankastræti 5 væri laust til leigu. Nú hefur Birgitta Líf tekið við lyklum að húsnæðinu og fetar þar með í fótspor foreldra sinna, Björns Leifssonar og Hafdísar Jónsdóttur. Björn og Hafdís, sem oft eru kennd við World Class, ráku skemmtistaðinn Ingólfskaffi um árabil og þótti staðurinn einn sá heitasti í bænum á þeim tíma.

Birgitta hefur starfað náið með foreldrum sínum undanfarin ár en hún er nú markaðsstjóri World Class. Nýverið opnuðu þau 18. líkamsræktarstöðina samhliða verslun með húðvörur, Laug­ar Spa Org­anic Skincare.

Hafdís og Björn ásamt börnum sínum Birgittu Líf og Birni …
Hafdís og Björn ásamt börnum sínum Birgittu Líf og Birni Boða. Ljósmynd/Sigurjón Ragnar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál