Hrafn á lista yfir 100 mest skapandi einstaklinga heims

Hrafn Gunnarsson hugmynda- og hönnunarstjóri á auglýsingastofunni Brandenburg.
Hrafn Gunnarsson hugmynda- og hönnunarstjóri á auglýsingastofunni Brandenburg.

Hrafn Gunnarsson, hugmynda- og hönnunarstjóri á auglýsingastofunni Brandenburg, hefur verið valinn á listann Adweek's Creative 100: The Most Inspiring Talents of 2021.  

Ár hvert setja sérfræðingar á vegum hins virta og víðlesna fagtímarits Adweek saman lista með 100 einstaklingum sem á síðasta ári þóttu skara fram úr, bæði fagfólk í auglýsingageiranum sem og áhrifafólk sem hefur látið til sín taka með eftirtektarverðum hætti. Meðal þeirra sem má finna á listanum með Hrafni eru handritshöfundurinn, leikstjórinn og leikkonan Michaela Coel, leikarinn Dwayne „The Rock“ Johnson, rapparinn Lil Nas X og aðgerðasinninn og skáldið Amanda Gorman.  

Í umsögn voru það einkum tvö verkefni sem vöktu athygli Adweek á Hrafni. Herferðin Fishmas sem unnin var fyrir Íslandsstofu og svo ný ásýnd og endurmörkun Knattspyrnusambands Íslands en bæði verkefni vann Hrafn með samstarfsfólki sínu á Brandenburg. Hið síðarnefnda var einmitt á lista Adweek yfir 25 bestu auglýsingaverkefni ársins 2020 og var þar í fríðum flokki með vörumerkjum á borð við Doritos, Burger King, Apple og Nike.  

Hrafn er að vonum stoltur að sjá nafn sitt á listanum.

„Það er óhætt að segja að þetta hafi komið á óvart. Þarna eru einstaklingar sem maður hefur lengi fylgst með og ber mikla virðingu fyrir, bæði í faginu og utan þess. Maður verður auðmjúkur að vera nefndur í sömu andrá. Enda lít ég fyrst og fremst á þetta sem sameiginlega viðurkenningu fyrir mig og mitt magnaða samstarfsfólk á Brandenburg. Við eigum þetta öll saman,“ segir Hrafn sem hefur starfað sem grafískur hönnuður síðan 2006 og er einn eigenda Brandenburgar.  

Brandenburg hlaut sex lúðra á síðustu markaðsverðlaunum ÍMARK og varð stofan hlutskörpust, fjórða árið í röð. Á stofunni starfa rúmlega 30 sérfræðingar á sviði hönnunar, vörumerkjaráðgjafar, hugmyndavinnu og textagerðar auk þess að sjá um birtingar, kaup og ráðgjöf gegnum snjallbirtingafyrirtækið Datera. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál