„Ég hef lært að setja ekki hamingjuna í hendurnar á öðrum“

Unnur Guðný selur myndirnar sínar á Apolloart.is og svo má …
Unnur Guðný selur myndirnar sínar á Apolloart.is og svo má sjá fleiri myndir á ART UGG síðunni hennar á Facebook. mbl.is/Árni Sæberg

Unnur Guðný María Gunnarsdóttir flugfreyja var á leið upp að altarinu, hafði keypt sér brúðarkjólinn, en hætti við það. Hún ætlar að halda í kjólinn enda veit enginn sína ævi fyrr en öll er. 

Hún er flugfreyja hjá Flugfélaginu Erni og vinnur í innanlandsflugi flugfélagsins og í sjúkraflugi þess um Skandinavíu. Á undanförnum árum hefur hún leitt uppbyggingu, þjálfun og fleira í flugfreyjudeild fyrirtækisins. Hún er einnig trúfræðslustjóri kaþólsku kirkjunnar á Íslandi. Á milli þess sinnir hún myndlistinni, en Unnur hefur verið að gera það gott sem myndlistarkona á síðustu árum.

„Ég er búin að vera að mála allt mitt líf, eða allt frá því ég vann myndlistarkeppni ellefu ára að aldri. Ég var ekki afrekskona í íþróttum, svo ég ákvað að setja fókusinn á myndlist og að læra portrett, olímálun og teikningar hjá Bjarna Sigurbjörnssyni listmálara sem kennt hefur meðal annars í Myndlistaskóla Kópavogs.“

Unnur Guðný María Gunnarsdóttir ásamt hundinum sínum Buddha á verkstæðinu …
Unnur Guðný María Gunnarsdóttir ásamt hundinum sínum Buddha á verkstæðinu sínu í Garðabæ. mbl.is/Árni Sæberg

Hefur alltaf verið sjálfstæð

Unnur Guðný kann vel við sig með nóg fyrir stafni. Hún er sjálfstæð, opin og bjartsýn á lífið en gerir ekki kröfur um að það sé fullkomið.

„Ég fór ung að heiman og hef alltaf lagt mikið upp úr því að geta séð um mig sjálf. Ég er mjög róleg að eðlisfari og einstaklega heimakær. Ég er trúrækin, en ég komst fyrst upp á lag með það að fara í kirkju þegar bekkjarsystir mín úr Breiðholtinu bauð mér með sér í kaþólsku kirkjuna þegar við vorum litlar stelpur.

Það var ýmislegt í gangi í kringum mig á þessum tíma og sáu starfsmenn kirkjunnar, þegar ég var 11 ára að aldri, að ég var að fá frið og ró með þeim. Þau gátu lítið stigið inn í aðstæður mínar, en ákváðu að kenna mér að biðja, sem er eitthvað sem ég bý að enn þá í dag.“

Unnur Guðný lítur á kaþólsku kirkjuna sem sína aðra fjölskyldu, en er einnig mjög náin foreldrum sínum líka. Fjölskyldan hefur farið í gegnum alls konar verkefni saman, meðal annars þegar Unnur Guðný missti yngri systur sína, Eyrúnu Gunnarsdóttur, aðeins 26 ára að aldri úr krabbameini.

„Ég hef verið heimalningur hjá Karmelnunnunum í Hafnarfirði lengi og starfa fyrir kirkjuna með börnunum. Það er alveg sama hvað gengur á í lífinu, það er alltaf best að leita til þeirra og eru systur mínar í Hafnarfirði mjög ráðagóðar og kærleiksríkar þegar verkefni lífsins banka upp á.“

Ekki gott þegar allir dagar verða dramadagar

Unnur Guðný segir enga tvo daga í vinnunni eins og að sú vinna sé eitthvað sem hún hafi unnið í tæpa þrjá áratugi og hún muni seint fá leið á því að fljúga.

„Sjúkraflugið er mjög sérstakt og getur tekið á mann. Við fáum lítinn tíma til að undirbúa okkur fyrir það enda erum við vanalega að fara með líffæraþega á spítala í aðgerðir í Skandinavíu. Adrenalínið rennur um æðarnar í okkur og margar ferðir eru ánægjulegar og góðar.“

Hún segir að það skiptist á skin og skúrir í lífinu.

„Ég var búin að vera lengi ein, í átta ár eða svo, sem var alveg frábært tímabil í mínu lífi. Svo bankaði ástin óvænt upp á hjá mér og ég leyfði mér bara að fara aðeins inn í það. Í raun miklu lengra en ég hef áður prófað.

Við vorum að undirbúa okkur fyrir að giftast inn í kaþólsku krikjuna, ég hafði fest kaup á brúðarkjól, en svo eins og stundum í lífinu þá bregðast krosstré sem önnur tré, sambandið gekk ekki upp, sem var vonbrigði en það var einnig margt að læra af þessu.“

Unnur Guðný segir að ef lífið hafi kennt henni eitthvað þá sé það að það sé of stutt fyrir drama.

„Ég held að það sé mikilvægt að vera í ástarsambandi þar sem fólk er ekki að reyna að breyta hvort öðru. Það er alveg eðlilegt að upp komi árekstrar en þegar allir dagar eru orðnir dramadagar þá er gott að staldra við og hlusta á innsæið. Jafnvel þótt það sé gert eftir að brúðarkjóllinn hafi verið keyptur.“

Unnur Guðný hefur lært að setja ekki hamingjuna sína í …
Unnur Guðný hefur lært að setja ekki hamingjuna sína í hendurnar á öðrum. Hún ætlaði að gifta sig nýverið og á nú brúðarkjól sem hún hefur ekki ákveðið hvað hún ætlar að gera við. mbl.is/Árni Sæberg

Ætlar að halda í brúðarkjólinn

Heldurðu að það sé áskorun fyrir karlmenn að vera með sjálfstæðum konum?

„Ég held ég hafi alltaf verið hálfofvirk, og stundum sé erfitt að halda í við mig en þegar maður á gott líf í grunninn þá er ástin meira viðbót við lífið heldur en lífið sjálft, en ég hef lært það að setja ekki hamingjuna mína í hendurnar á öðrum. Ég er búin að vera að hugsa um hvað ég eigi að gera við brúðarkjólinn. Þegar ég talaði um þetta við systurnar í Hafnarfirði þá vildu þær alls ekki að ég losaði mig við hann. Tíminn verður að leiða í ljós hvað gerist, en ég trúi svo heitt að lífið sé eins og það á að vera og allt hafi sinn gang í því.

Ég hef kynnst því af eigin raun. Nú er nóg að gera hjá mér og hefði ég aldrei trúað því sem dæmi að myndlistin myndi ganga svona vel. Ég hef einnig upplifað lífið þannig að ég átti nánast ekki fyrir bensíni. Stundum á maður lítið og stundum á maður mikið, það hefur ekkert með hamingju eða lífsgleðina að gera.

Ég er á heppnistímabilinu mínu núna og ætla bara að gera sem mest úr því.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál