Fer sínar eigin leiðir og lætur ekkert stoppa sig

Liv var einstæð móðir þegar hún hnaut um Sverri manninn …
Liv var einstæð móðir þegar hún hnaut um Sverri manninn sinn. Þá átti hún eitt barn og hann tvö og svo eignuðust þau eitt barn saman mbl.is/Kristinn Magnússon

Það er margt sem heillar við Liv Bergþórsdóttur forstjóra sem erfitt er að setja fingur á. Ætli það sé ekki hvað hún nær að halda í að vera jákvæð í lífinu, sama hvað gengur á. Hún hefur sinn smekk á fólki og veit fátt jafn sjarmerandi og fólk sem þorir að hugsa stórt.

Liv er einmitt fyrirmynd margra hvað varðar að sækja tækifæri og leiða uppbyggingu fyrirtækja í nýjum bransa. Þótt lífið virðist alltaf leika við Liv þarf hún, rétt eins og við hin, stundum að bretta upp ermarnar og takast á við það. Hún kann hvergi eins vel við sig og í spennandi vinnu.

Hún starfaði í fjarskiptageiranum í tvo áratugi og hefur setið í stjórnum fjölda fyrirtækja. Í dag er hún forstjóri ORF Líftækni sem er hvað þekktast fyrir Bioeffect-húðvörurnar. Hún er einnig stjórnarformaður Iceland Seafood.

Liv er gift Sverri Viðari Haukssyni og hafa þau hjónin mikinn áhuga á viðskiptum og vinnu almennt. Þau hafa verið góð í að deila lífshlaupinu hvort með öðru og hafa í gegnum árin alið hvort annað upp eins og Liv segir sjálf.

„Ég er með meira vesen en hann meira jafnaðargeð. Skilin á milli vinnu og frítíma hafa alltaf verið frekar óljós hjá okkur Sverri, en þannig var það líka heima hjá mér í æsku. Ég kem úr ágætlega samheldinni fjölskyldu þar sem báðir foreldrar unnu úti. Foreldrar mínir hjálpuðu mér mikið með námið og það kom aldrei til greina annað en að klára stúdentspróf og fara í háskólanám. Ég var alltaf mjög sjálfstæð en fékk á sama tíma mikinn stuðning og hvatningu frá fjölskyldunni. Eitt leiddi af öðru og eftir stúdentspróf fór ég í viðskiptafræði þar sem ég fann strax að ég var á réttri hillu. Eitt fyrsta starfið mitt í atvinnulífinu var í markaðsdeild, og fljótlega eftir það er ég komin inn í fjarskiptageirann.“

Krefjandi tímar vegna kórónuveirunnar

Liv er skírð í höfuðið á móðurömmu sinni, Liv Ellingsen, sem átti norska foreldra. Faðir hennar, Bergþór Konráðsson, átti Sindrastál. Móðir hennar, Hildur Björg Halldórsdóttir, er lífeindafræðingur að mennt.

Liv bendir á að markaðsfræðin hafi á þeim tíma sem hún lærði fag sitt verið mjög ungt fag á Íslandi en verið að sækja í sig veðrið inni í fyrirtækjum. Það sama hafi átt við um farsímamarkaðinn.

Það eru tæp tvö ár síðan Liv hóf störf hjá Orf Líftækni.

„Þetta hafa verið krefjandi tímar og miklar áskoranir að komast í gegn um kórónuveiruna en markmið okkar er auðvitað að koma sterkari út úr þessu tímabili en við vorum fyrir það. Við höfum notað tímann til að styrkja okkur á netinu og sett á markað öflugar vörunýjungar eins og Hydrating Cream og EGF Power Cream. Þá höfum við jafnframt nýtt tímann til stefnumörkunar og áætlum að innleiða breyttar áherslur hjá félaginu á árinu.“

Leitar í ögrandi verkefni

Engir tveir dagar eru eins í lífi Livar, sem er nokkuð sem hún kann að meta. Þannig hefur hún verið frá því hún man eftir sér.

„Í vinnunni er alltaf eitthvað nýtt að takast á við. Þannig umhverfi á vel við mig. Fólk er alls konar; sumir vilja mjög skýrar reglur, skýrar starfslýsingar og formfestu en aðrir þrífast betur í frjálslegra umhverfi. Þess vegna þarf þessa blöndu af fólki í gott lið. Ég þarf að hafa sterkt fólk með mér sem heldur utan um hlutina og skipulagið.“

Liv býr í fallegu húsi í Garðabæ með fjölskyldu sinni. Þegar þau Sverrir kynntust á sínum tíma var Liv einstæð móðir með eitt barn.

„Maðurinn minn átti tvö börn þegar við kynntumst og svo eignuðumst við eitt saman og síðan þá eru liðin tæp tuttugu ár. Eins og allir vita sem hafa farið í gegnum það að setja saman fjölskyldu, þá er það vinna. Núna erum við á nýjum stað þar sem börnin eru að fljúga úr hreiðrinu.

Þegar maður er yngri, að fóta sig á vinnumarkaði og að stofna fjölskyldu og eignast börn, þá er það fullt verkefni og fátt annað sem kemst að. Um tvítugt er fókusinn allur á okkur, svo eignast maður börn og það er rosalega gott að komast á það stig að þroskast og leggja áherslu á annað en sjálfan sig. Svo stækka börnin og maður eignast aftur tíma fyrir sig. Tíminn verður dýrmætari og maður fer aftur að hugsa: Hvað langar mig að gera? Ég held að þetta sé bara gangur lífsins og mikilvægt að ofhugsa það ekki.“

Þótt Liv vinni mikið þá er hún meiri fjölskyldumanneskja. Henni finnst gaman að fylgjast með börnunum vaxa og dafna, flytja að heiman og halda út í lífið.

„Lífið er auðvitað alls konar. Það eru alltaf einhverjar áskoranir; litlar og stórar. Hverjum kafla í lífinu fylgja nýjar áskoranir, þær gera lífið spennandi. Oft hefur gengið vel að takast á við áskoranir og stundum gengur það illa. Það er lífið.“

Fólk þarf að hafa ástríðu

Hvaða ráð áttu fyrir ungt fólk sem dreymir um farsælan feril sem stjórnendur í áhugaverðu fyrirtæki?

„Eitt það skemmtilega við ungt fólk er að það hlustar sjaldnast á þá sem eldri eru. Til að ná árangri skiptir gríðarlega miklu máli að hafa brennandi áhuga á því sem maður er að gera – það er ef til vill ekki fyrsta starfið eða annað starfið, sem kveikir þann áhuga, en til lengri tíma er það forsenda árangurs.“

Liv hefur sinn smekk þegar kemur að fólkinu í kringum hana.

„Ég er fyrir fólk sem segir: Ég skal. Hugsar stórt og framkvæmir. Það er mikilvægt að velja með sér fólk sem hefur ólíkan bakgrunn og reynslu.“

Hvað kanntu ekki að meta í fari fólks?

„Ég get ekki neikvæðni.“

Hvað gerirðu til að líta vel út?

„Ég reyni að forgangsraða í lífinu þannig að ég legg mikla áherslu á svefn, mataræði og síðan á hreyfingu. Ég reyni að setja mér markmið um aukna hreyfingu á hverju ári – það er að hreyfa mig meira í ár en ég gerði í fyrra – og hef bara staðið ágætlega við það. Mér finnst frekar fyndið að hugsa til þess að ég sem elska breytingar hef síðan bara átt nokkuð erfitt með að fara í gegnum breytingaskeiðið, ég þoli sem dæmi mjög illa að ná ekki mínum átta til níu tíma svefni.

Ég átti mér í raun engin áhugamál önnur en ferðalög fyrr en eftir fertugt, en síðan þá hef ég verið duglegri í að leika mér. Ég hef gaman af því að hjóla, synda og fer á standbretti og sjóskíði. Svo er ekki langt síðan ég byrjaði að hlaupa aðeins. Ég er engin afreksmanneskja í íþróttum; er ágæt í öllu en ekki góð í neinu. Ég reyni fyrst og fremst að njóta, en er einfari frekar en hópsál þegar kemur að hreyfingu.“

Liv er alltaf smart til fara og vex væntanlega aldrei upp úr því að ganga í gallabuxum og stuttermabol, en við þannig fatnað klæðist hún alltaf fallegum skóm.

„Ég hef alltaf verið með mikla fatadellu og hef rosalega gaman af því að skoða föt á netinu og fylgjast með því nýjasta þar. Uppáhaldsmerkið mitt í gegnum árin er Acne, svo fylgist ég með fleiri vörumerkjum en áhugi minn á þeim kemur og fer eftir tískulínum.“

Liv hefur gaman af myndlist og þá að fara á sýningar.

„Að öðru leyti er ég ekki mjög listhneigð en þegar kvikmyndir eru annars vegar hef ég mjög gaman af skandinavískum glæpaþáttum.“

Fyrirmyndir hennar í lífinu hafa í gegnum árin verið foreldrarnir. Ef hún gæti hitt sjálfa sig sem unga konu væri ekkert sem henni dytti sérstaklega í hug að segja sér, annað en þau ráð sem bæði foreldrar hennar og aðrir í nærumhverfinu gáfu henni á sínum tíma.

„Ég hef aldrei verið góð í að hlusta. Ég hef frekar þurft að reka mig á sjálf en ég vildi að ég hefði hætt að reykja fyrr og byrjað á því að fara út að hlaupa þegar ég var ung kona.“

Hvað viðkemur heimilinu þá er Liv fyrir hreint heimili sem er fallegt og einfalt.

„Eftir því sem ég eldist því minna af dóti vil ég hafa inni á heimilinu, en ég hef alltaf haft mikla þörf fyrir að breyta reglulega til hjá mér og færa til hluti. Maðurinn minn hefur ítrekað óskað þess að það væru hjól undir öllum húsgögnum vegna þessa.“

Hver er þín húðrútína og hefurðu alltaf hugsað vel um húðina?

„Ég hafði ekki hugsað neitt sérstaklega vel eða illa um húðina áður en ég hóf að vinna með Bioeffect. Ég hef alltaf verið meira fyrir serum en krem og hafði því notað EGF Serum-húðdropana af og til í gegnum tíðina. Í dag er uppáhalds Bioeffect-húðvaran mín 30 Day Treatment sem mér finnst mikilvægt að taka sem átak að minnsta kosti tvisvar til fjórum sinnum á ári. Andlitsmöskunum get ég einnig mælt með en í dag nota ég alltaf Hydrating, nýja rakakremið, og EGF-serumið saman. Ég vil hafa húðrútínuna einfalda og fljótlega og þetta virkar vel fyrir mig.“

Stefnir að því að margfalda söluna á erlendum mörkuðum

Liv er á því að almennt séu yngri konur meðvitaðri í dag um að hugsa vel um húðina en þær voru hér á árum áður.

„Ég held að þær byrji einnig fyrr en við gerðum. Þær eru meðvitaðri um innihaldsefni og mikilvægi þess að vörur séu unnar úr góðum hráefnum en mín kynslóð var. Hér áður fyrr var sagt að yngri konur mótuðust af því sem mæður þeirra gerðu og væru líklegastar til að kaupa sömu vörur og mæður þeirra. Núna held ég að því sé oft öfugt farið og margar mínar vinkonur fylgja því sem dætur þeirra benda þeim á að nota. Ég tel að þetta eigi einnig við um yngri karlmenn; þeir eru ekki hræddir við að nota andlitskrem og snyrtitaska karlmanna hefur almennt stækkað mikið frá því sem áður var. Maðurinn minn er til dæmis á því að EGF-serumið sé besta eftir-rakstur-andlitskrem sem hann hefur notað.“

Í framtíðinni stefnir Liv að því að sjá fyrirtækið sem hún starfar fyrir ná að margfalda söluna erlendis með öflugu sölu- og markaðsstarfi og áframhaldandi öflugri nýsköpun og vöruþróun.

„Svo skiptir máli að hafa gaman í vinnunni. Ég trúi að það sé ein lykilforsenda þess að liðsheildin nái árangri að það sé góð, skemmtileg og metnaðarfull stemning á vinnustaðnum.“

mbl.is/Kristinn Magnússon
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál