„Fótboltaleikur var lykillinn að útgáfu á heimsvísu“

Þóra Karítas Árnadóttir spjallar við Ragnar Jónasson rithöfund í nýju þáttaröðinni Morð í norðri. Ragnar segir frá því að það hafi tekið langan tíma að fá bækurnar sínar gefnar út á öðru tungumáli en íslensku og þýsku. Það breyttist þó þegar hann spilaði fótboltaleik með konu að nafni Karen Sullivan sem reyndist breskur bókaútgefandi. Eftir leikinn voru bækurnar þýddar á ensku og gefnar út um allan heim.

Í þáttaröðinni er farið í ferðalag um Skandinavíu til að kynnast norrænum glæpasagnahöfundum og komast að því hver ástæðan fyrir vinsældunum er. Þóra Karítas hittir fólkið á bak við sögurnar, myndirnar og þættina, á heimaslóðum þeirra og á þekktum sögusviðum bókanna.

Norrænar glæpasögur hafa notið vaxandi vinsælda víða um heim á undanförnum árum en margar eiga þær sameiginlegt að vera sagðar út frá sjónarhorni lögreglunnar í myrku landslagi norðursins. Sögurnar eru margar hverjar siðferðilega flóknar og sálrænar ástæður liggja ósjaldan að baki glæpunum eða í persónugerð lögreglunnar sem fer með rannsóknina.

Viðmælendur í þáttunum eru íslensku rithöfundarnir Ragnar og Yrsa Sigurðardóttir ásamt norrænu glæpahöfundum Lars Kepler, Kati Hiekkapelto, Antti Toumainen, Viveca Sten, Agnes Ravatn, Gunnar Staalesen, Jussi Adler Olsen og Sara Blædel. Öll þáttaröðin kemur í Sjónvarp Símans Premium á morgun, fimmtudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál