„Ég var í sannleika sagt hrædd um líf mitt“

María Ericsdóttir Panduro viðskiptafræðingur er einstaklega hugmyndarík. Hún á nokkur …
María Ericsdóttir Panduro viðskiptafræðingur er einstaklega hugmyndarík. Hún á nokkur fyrirtæki og er með margt á prjónunum þessa dagana.

María Ericsdóttir Panduro viðskiptafræðingur bjargaði geðheilsunni með því að fara út að ganga í kuldagalla um miðja nótt. Nú hefur hún gert sína eigin útfærslu af þessari flík sem hún mælir með fyrir allar konur á umbreytingatímum í lífinu. 

„Ég er stöðugt í fjársjóðsleit og gæti búið til listaverk úr nánast hverju sem er. Þessi listræna hugsun leiðir mig áfram í hönnun og fyrirtækjarekstri. Ég stofnaði hönnunarstofuna Karousel á sínum tíma, einnig Reykjavík Art Print sem er útgáfa með samtímalist. Nýjasta verkefnið er mitt eigið vörumerki sem heitir MXIA.org þar sem ég hanna skartgripi úr rekjanlegum eðalmálmum. Ég bý til alls konar vörur sem eru að mínu mati „betri vörur“. Mín skoðun er sú að við þurfum ekki fleiri vörur, heldur betri vörur með áherslu á vinnsluferlið og endingu. Við eigum að kaupa minna og nýta betur að mínu mati.“

Örlagaríki kuldagallinn og sagan á bak við hann

María klæðir sig í kuldagalla við hin ýmsu tækifæri. Nú er hún búin hanna sína eigin útgáfu á þessum galla sem hún segir vera ómissandi í fataskáp hverrar konu á umbreytingaskeiði hennar í lífinu.

„Ég vaknaði einn morguninn heima hjá Rebekku frænku minni á Norður-Jótlandi með hræðilegt kvíðakast. Mér fannst eins og heil hersveit væri sest ofan á hjartað mitt og var hrædd um líf mitt í sannleika sagt. Ég var að fara í gegnum sambandsslit og ýmislegt fleira. Þar sem klukkan var einungis fimm að morgni gat ég ekki farið til læknis eða vakið mannskapinn sem ég var að gista hjá, svo það eina sem mér datt í hug var að bjarga mér með því að fara út að ganga. Frænka mín hafði keypt flottan mosagrænan kuldagalla sem hékk í anddyrinu, ég greip hann og stakk mér í stígvél af syni hennar og svo fór ég bara út. Ég man ekki hvaða árstími var, en ég man að ég hugsaði að ég þyrfti að halda á mér hita en gat ómögulega fundið fleira til að klæða mig í.

Kuldagallinn frá MXIA á sér skemmtilega sögu, en hann er …
Kuldagallinn frá MXIA á sér skemmtilega sögu, en hann er hönnun Maríu og hefur með ákveðið tímabil í lífi hennar að gera. Hann fæst meðal annars á heimasíðu MXIA sem er eitt af fyrirtækjum Maríu. mbl.is/Annsy

Ég gekk út úr hverfinu hennar og fann lítinn moldarstíg sem ég fylgdi, inn á milli akranna. Allt í kringum mig var enn þá regnvott eftir nóttina og fylgdist ég með sólinni koma upp yfir skóginn í fjarska. Þetta varð björgunin mín og seinna þennan dag keypti ég svona kuldagalla á netinu og hef verið í honum annan hvern dag síðan. Ég fer í hann yfir náttfötin þegar ég keyri börnin í skólann, yfir skrifstofufötin þegar ég fer út með hundinn og hef ég meira að segja opnað „pop up“-verslun í honum á Laugaveginum. Það er alveg hægt að gera hann fínan með því að vera í háum hælum og hafa hárið flott. Svo er þessi kuldagalli alveg einstaklega þægilegur.“

Go Thermal Suit, kuldagallinn frá MXIA, er einstaklega smart flik …
Go Thermal Suit, kuldagallinn frá MXIA, er einstaklega smart flik sem hægt er að klæða ýmist upp og niður. Hann gengur því með fallegum hælaskóm jafnt sem útiskóm þegar fara á í lengri göngur. mbl.is/Annsy

Lét draum fjölskyldunnar rætast

María hefur ekki setið auðum höndum þegar kemur að heimilinu og hefur verið að gera fjölskylduhúsið upp í miðborginni.

„Það hefur lengi verið draumur fjölskyldunnar, það er mín og foreldra minna, að búa í einu stóru húsi saman, en hvor í sinni íbúðinni.

Það hefur verið mjög erfitt að finna hús þar sem íbúðirnar eru sambærilegar en oft er ein íbúðin í kjallara sem þá er töluvert minni. Það var óneitanlega skrítið að stíga skrefið þegar við loksins fundum húsnæði sem hentaði en ég sé ekki eftir því og mæli einlægt með þessu. Það er svo margt jákvætt við að búa nálægt sínum nánustu.“

Heimilið hennar Maríu er litríkt og fallegt og er hún …
Heimilið hennar Maríu er litríkt og fallegt og er hún dugleg að finna hluti víða á mörkuðum.

Kaupir nánast allan fatnað notaðan

Hvernig lýsir þú smekknum þínum heima?

„Stíllinn heima hjá mér er margbreytilegur. Ég vel hluti sem gera mig ánægða. Gæði hluta og saga þeirra skiptir máli. Ég er mikið fyrir skálar fyrir öll tilefni, úr sem dæmi ólífuviði og þá ímynda ég mér ólífutréð með daufgrænum ílöngum blöðum á þurri sinnepsgulri hlíð á Sardiníu eða Mallorca. Ég hef komist að því að það er langbest að kaupa minjagripina í Góða hirðinum, þar hef ég fundið grímur frá Feneyjum, suðuramerískt keramík, handmálaða diska frá Ítalíu og útskornar myndir frá Afríku úr fílabeinsviði. Ég kaupi líka húsgögn og lampa og geri að mínu. Ég hef keypt um það bil sjö kristalskrónur úr Góða hirðinum núna nýlega og búið til nokkrar nýjar úr þeim. Í borðstofunni er ég með ljós sem er undir áhrifum frá marglyttu, en þetta er kristalslampi með gamalt bleikt tjull frá dóttur minni og rauðum silkiborðum úr gömlu jólaskrauti, en mér finnst gaman að búa til eitthvað listrænt úr „rusli“.

Í borðstofunni er hún með ljós sem er undir áhrifum …
Í borðstofunni er hún með ljós sem er undir áhrifum frá marglyttu, en þetta er kristalslampi með gamalt bleikt tjull frá dóttur hennar og rauðum silkiborðum úr gömlu jólaskrauti.

Hvað með þinn eigin persónulegan fatastíl?

„Hann er síbreytilegur og ég blanda öllu saman sem mér dettur í hug. Ég elska að fylgjast með tískunni, ef til vill því ég dáist að alls konar hönnun og hef gaman að nýjungum, en ég kaupi mjög lítið nýtt. Ég versla nánast allt notað og þá helst úr Rauða krossinum og öðrum nytjaverslunum. Móðir mín, ásamt öðrum sjálfboðaliðum, rekur nytjaverslunina Allt er mögulegt sem ég og vinkonur mínar stofnuðum saman hér áður, en búðin er í kjallara kirkjunnar á Ingólfsstræti. Hún er opin tvisvar í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum, frá klukkan tvö til sex.“

María er einstaklega listræn og finnur falleg hluti meðal annars …
María er einstaklega listræn og finnur falleg hluti meðal annars í Góða hirðinum.

Hefur fundið Chanel í verslunum með tímabilsfatnað

Hvert er uppáhaldstískumerkið þitt?

„Ég hef fundið Chanel í verslunum sem selja tímabilsfatnað, sem er magnað. Ég hef gaman af því að fylgjast með Miu Miu, Stine Goya, Essentiel Antwerp, Balmain, Jil Sander og D&G, en myndi óska þess að merkin væru umhverfisvænni. Mér finnst skemmtilegt að sjá ný og frumlegri merki verða til og myndi vilja sjá flottu íslensku merkin framleidd hér heima, í það minnsta að hluta til.“

Hvað þarf maður að hafa í huga þegar maður setur saman fallegan fatnað og skartgripi?

„Mér finnst mikilvægt að búa til minn eigin stíl og útlit með því að blanda því saman sem ég á í skápnum. Mér líka miklar andstæður í litum og formum. Ég nota langmest skartgripi úr eðalmálmum eða náttúrulegum perlum og steinum þannig að skartið er örlítið minna og kannski svolítið „elegant“ og meira styðjandi við klæðnaðinn.“

María er býr til fallega skargripi sem einnig eru seldir …
María er býr til fallega skargripi sem einnig eru seldir á heimasíðu MXIA. Eins er hún með fyrirtækið Karousel þar sem hún býr til vörumerki og markaðsefni fyrir fyrirtæki.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál