Ekki með bein í nefinu til að demba sér í harkið

Kristín Pétursdóttir grafískur hönnuður tekur afar fallegar ljósmyndir.
Kristín Pétursdóttir grafískur hönnuður tekur afar fallegar ljósmyndir.

Kristín Pétursdóttir hefur þann eiginleika að sjá töfrana á bak við hversdagsleikann. Þetta er eitthvað sem hún hefur gert frá því hún man eftir sér. Þegar hún tekur ljósmyndir af fermingarbörnum þá velur hún náttúruna og svo barnaherbergið sem henni finnst veita innsýn í veruleika fermingarbarnsins. 

Kristín Pétursdóttir er grafískur hönnuður að mennt sem starfar á leikskóla á daginn. Hún nýtir hvert augnablik sem hún getur til að taka ljósmyndir, þegar hún er ekki með manni sínum, Youssef Maitnate, og fimm ára syni þeirra, honum Pétri Amir Maitnate.

Ljósmyndir Kristínar eru áhugaverðar fyrir margar sakir og er blaðamaður nokkuð viss um að djúpstæð upplifun snemma á lífsleiðinni geti gert fólk öðruvísi sjáandi í lífinu.

„Ég hef allt frá því ég man eftir mér verið heilluð af fólki og umhverfinu í kringum það. Ég er mjög næm og hef gaman af því að lesa í aðstæður fólks, sem er eiginleiki sem ég hef tileinkað mér allt frá því ég man eftir mér. Ég er áhugaljósmyndari og tek ljósmyndir daglega af öllu því sem ég sé í umhverfinu sem heillar mig. Ég er kannski ekki með flóknasta ljósmyndabúnað landsins, en er með auga fyrir því sem mér finnst fallegt og svo geri ég ákveðnar kröfur þegar kemur að ljósmyndunum mínum.“

Kristín var lengi að ákveða hvað hún vildi læra á sínum tíma að eigin sögn og byrjaði í Kennaraháskólanum en hætti og fór að vinna á leikskóla við Tjörnina þar sem hún tengdist sterkum böndum.

„Ég fór svo í fornámið í Myndlistaskóla Reykjavíkur og kynntist ljósmyndun þar svona af alvöru. Ég hafði reyndar mjög lengi haft áhuga á að taka myndir og eignaðist myndavél frekar ung. Síðar tók við listaháskólanám í grafískri hönnun þar sem ég skráði mig í alla mögulega ljósmyndaáfanga sem í boði voru. Ég útskrifaðist þaðan með BA-gráðu og bjartsýni en það var rétt fyrir hið fræga hrun svo ekkert varð úr framtíðarplönum mínum að vinna við grafíska hönnun. Ætli ég hafi ekki verið frekar óframfærin og ekki með bein í nefinu til að demba mér í harkið í þessum heldur karllæga hönnunarheimi.

Ég gat fengið vinnu á leikskólanum sem ég hafði unnið á og þar er ég enn og uni vel með börnunum í þessu frábæra umhverfi.“

Stöðugt að leita að formum og áhugaverðum myndbyggingum

Námið í grafískri hönnun nýtist Kristínu ljómandi vel, sem elskar að taka myndir og eru augu hennar stöðugt að leita að formum, litasamsetningum, myndbyggingum, áhugaverðu fólki og fyrirbærum til að mynda.

„Þetta getur orðið að einskonar þráhyggju. Ég birti frekar mikið af myndum á Instagram og verð mjög glöð ef það er haft samband við mig og ég fæ tækifæri til að taka að mér skemmtileg verkefni. Ég hef nýtt tækifærið og tekið myndir á merkilegum dögum í minni fjölskyldu, meðal annars á fermingardag Maríu Hrafnsdóttur, frænku minnar. Við fórum í Hljómskálagarðinn síðsumars þegar það var frekar einkennileg en áhugaverð birta.

Mér fannst tilvalið að fara í Hljómskálagarðinn því ég vissi að ég gæti tekið fjölbreyttar og lifandi myndir þar í fallegu umhverfi.

Það var mjög auðvelt að mynda Maríu. Við höfum alltaf náð vel saman. Við elskum til dæmis báðar Harry Styles, sem okkur finnst bestur!“

Þegar Kristín hefur myndað fermingarbörn og fólk almennt hefur henni þótt mikilvægast að skapa þægilegt andrúmsloft með rými fyrir þau til að blómstra og vera óhrædd við að vera þau sjálf.

„Mér finnst mikilvægt að gefa mér nægan tíma til að setja ekki óþarfa pressu á þau. Svo verður alltaf að hafa gaman. Mér finnst líka mikilvægt að velja staðsetningu sem býður upp á fjölbreytileika.“

Tekur ljósmyndir inni í unglingaherberginu

Kristín hefur sérstaklega gaman af unglingaherbergjum.

„Þau eru bara eitthvað svo mikill spegill á krakkana sjálfa. Mér finnst þau svo persónuleg, töff og falleg. Herbergið er svo mikill partur af okkur á þessum árum.“

Kristín talar um unglingsárin af mikilli innlifun og hefur hún kafað dýpra en margir gera sem vinna með þennan aldurshóp.

„Ég horfi á allar vel skrifaðar sjónvarpsseríur fyrir þennan markhóp. Mér finnst það hjálpa mér að skilja þau betur.

Þegar ég var sjálf unglingur, þá mátti ég ekki hengja plaggöt upp á veggina, því mömmu fannst það ekki nógu smekklegt. Nema svo fékk ég grænt ljós á að hengja plaggat á hurðina. Mamma gerði ráð fyrir því að ég myndi setja upp eitt smart plaggat, en það sem ég gerði var að ég þakti hurðina af myndum af draumaprinsi mínum á þeim tíma sem var Leonardo DiCaprio. Ég tók þetta leyfi alla leið. Ég held að í öllum herbergjum sem ég hef myndað hafi verið samsafn af einhverjum hugmyndum barnsins um lífið og tilveru þess. Þessi innri tjáning sem endar svo á veggjunum. Ég er svo glöð að almennt fái unglingar að tjá sig á veggjunum heima hjá sér.“

Þykir vænst um listræna ljósmynd frá hennar eigin fermingu

Hvernig var þinn fermingardagur?

„Mín fermingarmyndataka var í ljósmyndaveri, en sjálfri finnst mér skemmtilegast að vinna úti með krökkunum. Mamma saumaði á mig kjól eftir minni uppskrift sem var með einstaklega fallegum bakhluta. Mér þótti svo vænt um að ljósmyndarinn tók mynd af bakinu á mér og gaf okkur þá mynd aukalega. Þessi mynd hefur haft þau áhrif á mig að mér finnst gaman að taka listrænar myndir á hreyfingu eða úr fókus.

Ég var með spangir þegar ég fermdist og brosti því ekki á neinni mynd. Ég hef myndað stúlku með spangir og fékk hana til að brosa – sem mér þótti ein besta myndin.“

Hvernig velurðu svo myndirnar?

„Ég er þannig að ég vinn margar myndir og klára þær allar áður en ég sendi þær frá mér. Fermingarbarnið sjálft velur oftast einföldustu myndirnar, foreldrarnir eru svo með aðeins annan smekk og svo er ég fyrir þessar listrænu myndir, sem ég held að okkur þykir vænst um seinna meir.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál