Seldu kvöldstundina upp á fjórum mínútum

Ólöf og Kristín halda úti einu skemmtilegasta hlaðvarpinu í dag.
Ólöf og Kristín halda úti einu skemmtilegasta hlaðvarpinu í dag. Samsett mynd

Kristín Gunnarsdóttir og Ólöf Skaftadóttir seldu miða á kvöldstund í Iðnó upp á fjórum mínútum. Þær halda úti einu vinsælasta hlaðvarpi landsins, Komið gott. Hugmyndin að kvöldstundinni í Iðnó er hlaðvarp í beinni útsendingu þar sem þær ætla að láta gamminn geisa ásamt valinkunnum, ólæsum gestum.

Þau heppnu sem náðu miða mega búast við yfirferð á niðurstöðum Alþingiskosninga og lúkningu á fyrstu seríu hlaðvarpsins.

„Það eru einhverjir til sem hafa smekk fyrir þessu rausi í okkur. Það kemur okkur mjög á óvart í raun og alveg ljóst að miðaverð var of lágt. Sem kapítalistar munum við læra af þessu og kippa því í liðinn á nýju ári,“ segir Ólöf.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda