„Ég fann ég var ekki nógu nærð, eða þessi hlið af mér“

Ellen Loftsdóttir stílisti hefur farið í mikla sjálfsvinnu á árinu …
Ellen Loftsdóttir stílisti hefur farið í mikla sjálfsvinnu á árinu og lært heilmikið.

Ellen Loftsdóttir stílisti skráði sig meðal annars á keramiknámskeið á árinu og byrjaði að mála þar sem hún vildi leyfa listrænu hliðinni að njóta sín betur. 

„Ég fann ég var ekki nógu nærð, eða þessi hlið af mér. Ég fór að mála og byrjaði að gera keramik. Það hefur gefið mér hugarró að detta inní einhvað annað þegar tími gefst. Ég verð líka að hafa eitthvað til hliðar við vinnuna,“ segir Ellen.

„Maður upplifir alltaf smá blendnar tilfinningar þegar maður kveður nýtt ár og ég fæ stundum smá kvíða yfir því.“

Er þetta búið að vera gott ár?

„Já, upp og niður. Þegar ég horfi svona yfir árið í heild sinni að þá stendur kannski allskonar lærdómur uppi. Ég uppgötvaði margt nýtt um sjálfa mig og umhverfi enda hef ég reynt að fara í mikla sjálfsvinnu á liðnu ári. Ég mun búa vel að þegar ég legg inn í þetta nýja ár sem er að hefjast. Fimm hefur líka alltaf verið happatalan mín svo ég verð að viðurkenna að ég finn fyrir mikilli tilhlökkun um að 2025 muni færa mér allskonar spennandi.“

Hefurðu fórnað samböndum fyrir framann?

„Þegar maður býr erlendis verða fjölskyldu- og vinasambönd öðruvísi en ég hef verið góð í að halda í mín sambönd. Ég á mjög góðar og nánar vinkonur, vini og fjölskyldu sem ég er óendanlega þakklát fyrir. Ég hef alltaf verið rosalega heppin með gott fólk í kringum mig,“ svarar hún.

„Ég hef kannski vanrækt sambandið við sjálfa mig með því að vera of metnaðarfull. Maður er oft með svipuna á sjálfan sig og heldur oft að það sé eina leiðin til að komast langt. Með því að vera sjálfsgagnrýnin og harður við sjálfan sig. Það getur verið gott en líka mjög slæmt.“ 

Listræna hliðin er mikilvæg og Ellen gefur henni mikið pláss.
Listræna hliðin er mikilvæg og Ellen gefur henni mikið pláss.

Hausinn alltaf í vinnunni

Starfið hefur skipt hana miklu máli. „Vinnan er hluti af sjálfinu. Það er ekki aðskylt þegar þú ert í listrænu starfi. Ef þú móðgar vinnuna mína þá móðgaru mig,“ hlær hún.

„Hausinn er stanslaust í vinnunni. Ég fæ svo mikið af hugmyndum, ég stoppa nánast ekki. Þetta er náið samband, vinnan þín og þú. En það sem ég er að reyna að einbeita mér að núna er kannski að aðskilja þetta tvennt. Hver er ég án vinnunnar minnar? Að taka hlutunum ekki eins alvarlega og hafa meira gaman að þessu öllu saman. Það er samt meira en að segja það,“ bætir hún við brosandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda