Erna Kristín Stefánsdóttir, sem heldur úti Instagram-reikningnum Ernuland, útskrifaðist nýverið sem markþjálfi.
Hún greindi frá gleðitíðindunum á samfélagsmiðlum í gærdag.
„Æ, það er eitthvað við þetta litla líf, sem er svo „bitter sweet“, það kennir manni ýmislegt, stundum er það óþarflega harkalegt og minnir á fjallgöngu þar sem þú ert með stein í skónum allan tímann & stundum er það eins og nýþeyttur rjómi & heitar vöfflur með þínu besta fólki. Við fáum víst lítið um það að segja & það eina sem við getum gert er að standa í lappirnar & hætta að bíða eftir því að einhver komi að bjarga þér, það er trúlega "bitter" kaflinn í vegferðinni.
Síðustu ár hafa einmitt verið meira eins og þessi fjallganga, með stein í skónum & ég gæti gengið svo langt að bæta hælsæri á það, norðanátt með úrkomu á köflum... en í svona þrautagöngu lærir maður ó svo mikið, jafnvel aðeins meira en maður hafði áhuga á, en það er óhjákvæmilegt því það sem gerist er að maður sér umhverfið öðruvísi, fólkið í kringum sig, framtíðina, það er margt sem verður skýrara og því geta fylgt vaxtaverkir sem maður er misundirbúinn undir.
En þá er það sæti parturinn af vegferðinni, það er það sem situr eftir. Þrautseigjan. Þögnin. Þakklætið. Trúin á sig. Eftir að hafa haldið áfram með steininn í skónum & blæðandi hælsæri þá lærði ég að mæta sjálfri mér. Halda mér uppi. Stundum með seiglu. Stundum með húmor. Stundum með þrjósku. Stundum með óteljandi tárum og stundum með hafragraut í hárinu & köldu kaffi.
Í dag er ég þreytt. En líka stolt. Pínulítið lítil í mér en líka rosalega hamingjusöm og þá aðallega með „litlu“ fjölskylduna mína & fólkið mitt sem stóð í storminum með mér & fólkið sem hefur komið inn í líf mitt í öllum vaxtaverkjunum.
Í dag er ég ekki bara nýútskrifaður markþjálfi heldur er ég líka sterkari og ekki frá því mildari líka. Bæði fyrir sjálfri mér og lífinu í heild, því þegar ég lærði að ekkert breytist ef maður breytir engu þá vissi ég að það var kominn tími til þess að breyta til & ákvað því að skrá mig í markþjálfanám hjá Profectus & ég gæti ekki mælt meira með því. Þetta er ekki bara nám, þetta er gjöf,“ skrifaði Erna Kristín meðal annars við mynd af sér með útskriftarskírteinið.
Fjölmargar þekktar samfélagsmiðlastjörnur hafa lækað við færsluna og einnig óskað Ernu Kristínu til hamingju með áfangann, en á meðal þeirra eru Rakel María Hjaltadóttir, Brynja Dan, Tara Sif Birgisdóttir, Helgi Ómarsson, Lína Birgitta Sigurðardóttir, Eva Mattadóttir og Íris Svava Pálmadóttir.
Smartland óskar henni að sjálfsögðu hjartanlega til hamingju!