Eymundur Sveinn Einarsson, endurskoðandi hjá Endurskoðun og ráðgjöf, svarar spurningum lesenda Smartlands. Hér fær hann spurningu frá eldra fólki sem veltir fyrir sér hvort sala á strandveiðibát muni skerða tekjurnar frá Tryggingastofnun.
Sæll Eymundur!
Við hjónin erum ellilífeyrisþegar og eigum strandveiðibát á eigin kennitölu. Okkur langar að vita hvernig það er þegar kemur að sölu, þar sem ekkert hvílir á honum hvort við missum ekki réttin frá Tryggingastofnun það árið sem salan færi fram? Síðan er spurning hvort við mættum láta börnin fá hann sem fyrirfram greiddan arf og þá kæmi það ekki við bæturnar frá Tryggingastofnun eða hvað?
Með fyrir fram þökk,
hjónin.
Sæl bæði
Það er líklegt ef bókfært verð bátsins er undir markaðsverði að skattskyldur söluhagnaður myndist við sölu hans. Sá söluhagnaður myndi líklegast skerða bætur til ykkar á söluári.
Ef andvirði sölunnar yrði síðan ráðstafað á skynsamlegan hátt t.d. á sparnaðarreikninga myndu fjármagnstekjur af þeim skerða bætur til framtíðar. En hafa ber í huga að skattur af fjármagnstekjum er 22% meðan bætur frá Tryggingastofnun bera um 37% skatt.
Þannig að eins og hefur komið fram áður þá er hagstæðara að hafa fjármagnstekjur með 22% skatti en að fá bætur frá Tryggingastofnun sem bera 37% skatt.
Ef hugsunin er að nýta tækifærið og greiða erfingjum út fyrirframgreiddan arf þá ber slík ráðstöfun 10% erfðafjárskatt og myndar ekki söluhagnað, enda er enginn að selja neitt.
Slík ráðstöfun hefur ekki áhrif á bætur ykkar frá Tryggingastofnun þar sem ekki er um sölu á neinu að ræða og þið eruð að láta frá ykkur eignir án endurgjalds.
Kveðja,
Eymundur Sveinn Einarsson endurskoðandi.
Liggur þér eitthvað á hjarta? Þú getur sent Eymundi spurningu HÉR.