Gummi kíró aðstoðar íslenska áhrifavalda

Binni glee, Patrekur Jaime og Fanney Dóra eru komin á …
Binni glee, Patrekur Jaime og Fanney Dóra eru komin á skrá hjá Atelier Agency. Samsett mynd

Áhrifavaldarnir Binni Glee, Patrekur Jaime og Fanney Dóra hafa gengið til liðs við umboðsskrifstofuna Atelier Agency, sem var sett á laggirnar nú í mars með það að markmiði að byggja upp öflugt samfélag áhrifavalda og stuðla að fagmennsku í bransanum.

Að stofnun Atelier Agency stóðu þau Kristjana Björk Barðdal og Guðmundur Birkir Pálmason, betur þekktur sem Gummi kíró.

Hugmyndin að stofunni kviknaði eftir að Kristjana tók að sér umboðsmennsku fyrir Gumma kíró sumarið 2024. Samstarfið gekk vel og leiddi til þess að þau buðu áhrifavöldum á ókeypis námskeið veturinn 2025. Þar kom glögglega í ljós að mikil þörf er á vettvangi fyrir nýliða í bransanum – þar sem þau fá stuðning, stefnu og rými til að vaxa á eigin forsendum.

„Við leggjum ekki bara áherslu á að sækja samstörf – heldur að styðja fólk í vexti, byggja upp sjálfstraust og skapa efni sem endurspeglar raunveruleg gildi og áhuga,“ segir Kristjana. „Það getur verið einmanalegt að vera áhrifavaldur, og með Atelier viljum við bjóða upp á bakland og stuðning – sama hversu stórt eða lítið fylgið er.“

Binni Glee, Patrekur og Fanney eru meðal fremstu áhrifavalda landsins og stofnendur Atelier segjast einstaklega stolt af því að fá þau í hópinn.

„Þau eru öll með ólíka miðla og ólíkan hóp fylgjenda, en eiga það sameiginlegt að þora að vera þau sjálf – og þau eru algjörlega einstaklega skemmtileg,“ segir Gummi kíró.

„Það verður að vera gaman í vinnunni – annars verður þetta bara leiðinlegt,“ bætir Kristjana við og brosir. 

„Við erum ótrúlega þakklát fyrir móttökurnar“

Fleiri áhrifavaldar eru nú á skrá hjá Atelier Agency, þar á meðal May, sem hefur náð mikilli útbreiðslu á TikTok, og Steffý, sem hefur verið áberandi á samfélagsmiðlasíðunni síðustu mánuði. Einnig má nefna Nadíu Sif og dansarann Rúnar Bjarna.

Heildarfjöldi áhrifavalda hjá Atelier er nú 13 talsins, og eru fleiri væntanlegir á næstu dögum.

„Við erum ótrúlega þakklát fyrir móttökurnar – það hefur verið virkilega gaman að stíga inn á markaðinn,“ segir Kristjana. „Fyrirtæki hafa tekið vel á móti okkur og við finnum að það er að færast líf og fjör í leikinn.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda