Lífstílsvefurinn Smartland fagnar 14 ára afmæli um þessar mundir en 14 ár í heimi fjölmiðlunar er langur tími og hefur fjölmiðlaumhverfið tekið miklum breytingum yfir þann tíma.
Marta María Winkel Jónasdóttir, fréttastjóri dægurmála Morgunblaðsins og mbl.is og upphafskona Smartlandsins, segir ekki hafa verið gengið að því í fyrstu að útfæra lífstílsvef sem félli fullkomlega að genamengi fyrirtækisins. Það hafi henni þó fljótt tekist í góðu samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk sem sá verðmæti í verkefninu.
„Það að fara búa til einhvern bleikan vef sem var skírður í höfuðið á einhverri konu - fólk skildi þetta nú ekkert fyrst sko,“ segir Marta María.
Hún segir Óskar Magnússon, fyrrum stjórnarformann Árvakurs, hafa verið sérstaklega trygglyndan stuðningsmann Smartlandsins á stofnunartíma þess og stutt við bak hennar þegar nafngift vefsins var til umræðu og fólki greindi á um hið eina sanna nafn.
„Það var mjög mikil stoð og stytta í honum og þegar ég var búin að rífast um það við einn samstarfsmann minn hvað Smartland ætti að heita í heilan mánuð þá sagði Óskar: „Marta, þetta er þinn vefur og þú veist miklu betur heldur en þessir menn hvað þessi vefur á að heita. Þannig ef að þú vilt að þessi vefur heiti Smartland þá heitir hann Smartland“,“ lýsir Marta og segir nafnið þar með hafa verið ákveðið.
Þó nær forsaga nafnsins aðeins lengra aftur í tímann. Hugmyndin að því spratt upp á yfirborðið eftir að Marta María hafði keypt sér glæsiíbúð sem rataði á forsíðu Húsa & híbýla.
„Ég hafði keypt einhverja ægilega smart íbúð með hárri lofthæð og einhverjum fljúgandi innréttingum og það var innlit í þessa íbúð sem endaði á forsíðunni og þá var þessi íbúð kölluð Smartland,“ rifjar hún upp, létt í bragði.
„Þetta var náttúrulega geggjuð íbúð sko.“
Jóhanna Kristín Jóhannesdóttir, fyrrum blaðamaður, tískuunnandi og fagurkeri, er konan sem tók upp á því að kalla slotið hennar Mörtu Maríu Smartland. Er því óhætt að segja að hún hafi verið ákveðinn örlagavaldur í sögu vefsins. Enda hefur nafnið spilað stórt hlutverk í vegferð Smartlandsins og rammar inn viðfangsefni vefsins á fortakslausan hátt.
„Eftir að þessi grein birtist þá stofnaði ég blogg sem hét Smartland sem ég notaði til að sýna frá breytingum á heimilinu mínu og eitthvað svona. Svo mér fannst þetta bara vera eitthvað svo borðleggjandi.“
Smelltu á hlekkinn hér að neðan til að nálgast viðtalið við Mörtu Maríu í heild sinni.