Björt stofnar fyrirtæki með eiginmanninum

Björt Ólafsdóttir hefur stofnað fyrirtæki.
Björt Ólafsdóttir hefur stofnað fyrirtæki. mbl.is/Hanna

Björt Ólafsdóttir fyrrverandi ráðherra Bjartrar framtíðar og núverandi viðskiptakona hefur stofnað fyrirtæki með eiginmanni sínum Birgi Viðarssyni. Félagið ber nafnið Kolgríma ehf. og er tilgangur þess  þróun og uppbygging á lágkolefnis byggingum. Félagið var stofnað í maí og er Björt formaður stjórnar og Birgir meðstjórnandi. 

Björt hefur gert ýmislegt síðan hún hætti á Alþingi en Smartland greindi frá því 2023 að hún væri að byggja blokk við Frakkastíg ásamt Brynhildi S. Björnsdóttur. 

„Við í IÐU geng­um á dög­un­um frá hluta­fjáraukn­ingu og feng­um með okk­ur öfl­uga fjár­festa til að hleypa af stokk­un­um því áhuga­verða, en auðvitað krefj­andi verk­efni, að hanna og byggja fjöl­býl­is­hús á Frakka­stíg 1 sem unnið verður eft­ir aðferðum hringrás­ar­hag­kerf­is­ins,“ sagði Björt fyrir tveimur árum. 

Smartland óskar hjónunum góðs gengis með nýja fyrirtækið! 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda