Arkitektinn Snædís Bjarnadóttir hefur sett glæsilega íbúð sína í Eskihlíð á sölu. Eignin, sem er tæplega 100 fm að stærð, er bæði sérlega sjarmerandi og töffaraleg í senn.
Íbúðin er björt og skemmtileg, en bæði eldhús og baðherbergi hafa verið tekin í gegn nýlega.
Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.
Íbúðin er opin og björt. Dökkt parketið setur skemmtilegan svip á rýmið.
Ljósmyndari / Heimili fasteignasala
Í eldhúsinu er að finna nýlega, hvíta innréttingu. Opnu hillurnar gera andrúmsloftið heimilislegt.
Ljósmyndari / Heimili fasteignasala
Eitt svefnherbergi hefur verið innréttað sem fataherbergi.
Ljósmyndari / Heimili fasteignasala
Svörtu flísarnar gefa töffaralegt yfirbragð.
Ljósmyndari / Heimili fasteignasala