Meghan Markle, hertogaynjan af Sussex, hefur farðað sig sjálf fyrir síðustu viðburði konungsfjölskyldunnar. Daniel Martin, sem sá um förðun Markle fyrir brúðkaupið, hrósaði henni í athugasemd við Instagram-færslu sína í vikunni. Markle ferðast ekki með förðunarfræðing með sér í konunglegar heimsóknir heldur sér sjálf um útlit sitt. Hún virðist vera fullfær um að sjá um förðun sína sjálf því munurinn er vart sjáanlegur.