Ómissandi í ferðalagið

Samkvæmt Pathport er Elisa einn áhugaverðasti veitingamaður New York borgar. …
Samkvæmt Pathport er Elisa einn áhugaverðasti veitingamaður New York borgar. Hún rekur staðinn Maman í New York ásamt eiginmanni sínum Ben. Ljósmynd/skjáskot Instagram

Þeir sem eru á ferðalögum í þesum mánuði ættu ekki að láta það tækifæri fram hjá sér fara að skoða Pathport sem er nýr leiðavísir fyrir þá sem vilja fara á fallegustu staðina víðs vegar um heiminn. Hægt er að skoða Pathport á Instagram.

Sem dæmi er hægt að kaupa leiðarvísi um París þar sem hægt er að finna falda fjársjóði sem einungis Parísarbúar vita um. Eða að borða á einstökum veitingastöðum sem bjóða upp á góðan mat og ljósakrónur úr fjöðrum í Washington í Bandaríkjunum.

Hver vissi að fjaðraljósakróna væri málið? Pathport finnur staðina í …
Hver vissi að fjaðraljósakróna væri málið? Pathport finnur staðina í Washington. Ljósmynd/skjáskot Instagram

Einnig er hægt að velja styttri ferðir, þar sem maður fjárfestir í upplifun í nokkra daga meðal annars í New York og Barcelona.

Að ganga í gegnum Gràcia-hverfið í Barcelona er einstakt með …
Að ganga í gegnum Gràcia-hverfið í Barcelona er einstakt með aðstoð Pathport. Ljósmynd/skjáskot Instagram

Vogue segir Pathport vera einstakt á sínu sviði. Það sé hinn auðmjúki ferðafélagi og leiðsögumaður uppfærður nútímalega inn í 21. öldina. Aðilar sem starfa á vegum Pathport eru leiðtogar, listamenn og fleiri sem hafa áhuga á að gefa það allra besta til ferðalanga sem langar í öðruvísi upplifun. Hægt er að skoða menningu, staði og list, heimspeki og túarbrögð í gegnum þessa áhugaverðu leið.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál