Í gömlum skóm með kúaskinnsmynstri

Meghan var í klassískri kápu frá Oscar de la Renta.
Meghan var í klassískri kápu frá Oscar de la Renta. AFP

Meghan hertogaynja er mætt til vinnu eftir jólafrí. Hertogaynjan kynnti sé góðgerðarstarfsemi sem hún var skipuð verndari yfir á fimmtudaginn. Hún virtist í fyrstu vera í afar látlausum klæðnaði en skór hennar hafa vakið athygli. 

Elle greinir frá því að Meghan hafi klæðst sérstökum óléttukjól frá meðgöngufatamerkinu Hatch. Við kjólinn var hún í klassískri kápu frá Oscar de la Renta. Þessi fatnaður var kannski óspennandi en það kvað við allt annan tón þegar kom að skónum sem voru með dýramynstri en þó ekki því sem hefur verið vinsælt að undaförnu. 

Sérfræðingar í fatastíl Meghan tóku eftir því að hælaskórnir frá Gianvito Rossi voru gamlir. Kom í ljós að skórnir voru frá Hollywood-tíma Meghan. Birtist mynd af hælunum með plastinu og kúaskinnsmynstrinu á Instagram-síðu Meghan áður en hún gekk í hjónaband með Harry. 

Hér má sjá skóna með kúaskinnsmynstrinu.
Hér má sjá skóna með kúaskinnsmynstrinu. AFP
Meghan hertogaynja.
Meghan hertogaynja. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál