Hlýjum fólki um hjarta og tær

Anna Dröfn Sigurjónsdóttir, formaður Krabbameinsfélagsins í Borgarfirði, prjónar sokka í …
Anna Dröfn Sigurjónsdóttir, formaður Krabbameinsfélagsins í Borgarfirði, prjónar sokka í Krafts-litunum. Ljósmynd/Aðsend

Hún hefur sjálf gengið í gegnum krabbameinsmeðferð og veit hversu miklu skiptir að finna fyrir stuðningi og hlýhug. Anna Dröfn er fremst í flokki við að hrinda af stað verkefni þar sem allir geta prjónað til góðs, fyrir ungt fólk sem greinist með krabbamein.

Allir geta tekið þátt, sama hvar þeir halda kyrru fyrir og hlýða Víði, þá geta þeir sest niður og prjónað. Uppskriftin er einföld og það þarf ekki að kunna að prjóna hæla því þetta er hælalaus strokkur, ekki ósvipaður gömlu sjónvarpssokkunum, og þeir passa fyrir vikið á alla. „Í þessu árferði finnst okkur tilvalið að fara af stað með þetta verkefni á landsvísu,“ segir Anna Dröfn Sigurjónsdóttir, formaður Krabbameinsfélagsins í Borgarfirði, en félagið í samstarfi við Kraft, stuðningsfélag fyrir ungt fólk með krabbamein og aðstandendur, hrindir nú af stað verkefni sem ber heitið Lykkja fyrir lykkju.

Nú geta allir prjónað til góðs fyrir ungt fólk sem …
Nú geta allir prjónað til góðs fyrir ungt fólk sem greinist með krabbamein. Ljósmynd/Aðsend

Það gengur út á að fá landsmenn til að prjóna til góðs, ákveðna fyrrgreinda sokka, en í kjölfar verkefnisins verður slíkt sokkapar í hverjum gjafapakka sem Kraftur gefur öllum þeim sem greinast með krabbamein á aldrinum 18-40 ára. Gjafapakkann fær fólk afhentan þegar það mætir í meðferð eða í fræðsluviðtal. Í pokanum eru auk sokkaparsins upplýsingabæklingar, bókin LífsKraftur – Fokk ég er með krabbamein, tannbursti og armband.

„Við hvetjum alla sem sokki geta valdið til að vera með. Ég veit að margir vilja leggja sitt af mörkum til að styrkja krabbameinsgreinda án þess að láta pening af hendi rakna, vilja frekar gera eitthvað sem verður til þess að einhverjum öðrum líður betur, í þessu tilviki hlýnar á tánum og í hjartanu.“

Hvert ár greinast sjötíu ungir

„Við hér í Borgarfirði ætlum að halda utan um verkefnið í samstarfi við Ístex og Framköllunarþjónustuna í Borgarnesi. Sokkarnir eru prjónaðir úr garni sem heitir Spuni og Ístex framleiðir og ætlar að gefa garn í 70 sokka, því það er sá fjöldi sem greinist á ári í þessum aldurshópi 18-40 ára. Þetta er mjúkt ullarband sem ekki stingur og sokkarnir verða að sjálfsögðu í Kraftslitunum, appelsínugulum og svörtum. Þeir sem taka þátt í að prjóna sokka fá pakka sem inniheldur garn sem nægir í sokkana, uppskriftina og kynningu á verkefninu. Fólk í okkar sveitarfélagi getur sótt sér slíkan pakka hjá Framköllunarþjónustunni en aðrir geta fengið pakkann sendan í pósti. Þeir sem búa í Reykjavík geta sótt sér pakkningu hjá Krafti í Skógarhlíðinni. Þó nokkur ungmennafélagsandi er í þessu verkefni og það er kærkomið einmitt núna á covid-tímum að stíga skref til baka, hægja á okkur, setjast niður og prjóna,“ segir Anna Dröfn og bætir við að þótt nú séu viðsjárverðir tímar þar sem allt sé sett í biðstöðu hætti fólk ekki að greinast með krabbamein.
Sokkarnir eru einstaklega notalegir eins og sjá má.
Sokkarnir eru einstaklega notalegir eins og sjá má. Ljósmynd/Aðsend

„Þetta eru einmitt mjög erfiðir tímar fyrir krabbameinsveika sem eru í áhættuhópi með bælt ónæmiskerfi. Þá skiptir máli að láta gott af sér leiða og nú þegar er kominn biðlisti af ömmum, mömmum og öfum sem ætla að leggja lið og vera með í að prjóna sokka handa þessu unga fólki. Það er hugur í okkur Borgfirðingum, við sjáum tækifæri til að virkja alla landsmenn í verkið og ef það verður umframmagn af sokkum getur Kraftur selt þá sokka í sinni netverslun til styrktar félaginu og því góða starfi sem þar fer fram.“

Mikið verkefni að lifa af

Anna Dröfn býr í Kvíaholti, sveitabæ í Borgarfirði þar sem hún ásamt fjölskyldu sinni er með ferðaþjónustu og sauðfé. Þetta er fyrsta árið sem Anna Dröfn er formaður í Krabbameinsfélagi Borgarfjarðar sem fagnar 50 ára afmæli á þessu ári.

„Við höldum mörgum verkefnum á lofti og viljum vekja athygli á félaginu okkar sem er rótgróið hér heima í héraði, það þarf ekki alltaf að sækja allt til höfuðborgarinnar. Við erum sveitó hér í sveitinni og stolt af því, við búum til okkar eigið band úr ullinni og hér er handverksfólk á öðrum hverjum bæ. Það er skemmtilegt að geta samræmt áhugamálin, ástríðuna fyrir félagsmálum og handverkinu og láta gott af sér leiða,“ segir Anna Dröfn sem hefur persónulega reynslu af krabbameini, en hún greindist árið 2016 með brjóstakrabbamein, þá 33 ára með þrjú börn, það yngsta tveggja ára.

„Ég hef náð bata og nú er bara að taka eitt ár í einu. Ég er orðin virkur samfélagsþegn á ný og get farið að prjóna aftur. Amma mín sá um að prjóna hlýja sokka á mig þegar ég fór í gegnum mína krabbameinsmeðferð. Ég fann sannarlega fyrir hlýhug þegar ég fór í gegnum mína meðferð og að alla langar að aðstoða á einhvern hátt, gefa eitthvað af sér. Sá sem greinist er fastur í sinni búbblu, mætir til læknis og reynir að lifa af, það er mikið verkefni. Þeir, sem langar til að styrkja, hafa jafnvel misst einhvern nákominn eða horft á ættingja eða vin fara í gegnum þetta ferli, þeir geta gefið af sér með því einu að setjast niður og prjóna þessa sokka. Enginn þarf að flýta sér, þetta verkefni stendur út árið. Við þurfum að hætta að flýta okkur.“

Fólk skráir sig til leiks á kraftur.org eða á facebooksíðu Krafts, eða með því að senda póst á krabbameinsfelagborgarfjardar@gmail.com eða hringja í s: 865-3899, og fær þá nánari upplýsingar um hvernig hægt er að nálgast garn, uppskriftir og hvar skuli skila inn tilbúnum sokkum.
Viðalið birtist fyrst í Morgunblaðinu 8. apríl 2020
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Stöndum saman

Við hjá Árvakri viljum vekja athygli á því sem vel er gert á þessum erfiðu tímum. Ef þú ert með góða sögu af fyrirtækjum og einstaklingum sem eru að gera gott, sendu okkur ábendingu á netfangið stondumsaman@mbl.is.

Stöndum saman

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál